Sergio Cragnotti, sem enn sinnir starfi forseta Lazio, segist vera tilbúinn til þess að fórna fyrirliða félagsins, Alessandro Nesta, til þess að landa Gaizka Mendieta til félagsins.

“Ef við ætlum að ná í Mendieta þá er ég ansi hræddur um að við verðum að selja Alessandro Nesta. En ef það gerist þá munum við finna jafnoka Nesta og kaupa hann til Lazio,” sagði Cragnotti.

Lazio hefur því bæst í hóp fjölmargra liða sem vilja fá Mendieta til sín, en Cragnotti er orðinn örvæntingarfullur í leit sinni að leikmönnum til þess að leysa þá Veron og Nedved af hólmi.

Hvað stuðningsmönnum Lazio finnst um þessa ráðagerð er erfitt að segja, en við spáum annarri grjóthríð á kofann hans.

Hvað segiði komiði með comment! Mynduð þið selja Nesta fyrir Mendieta?