jæja, var að fá mér FS Passengers…loksins :) Þvílíkt snilldar add-on. Í fyrsta fluginu mínu drapst á hreyflinum og ég þurfti að gera emergency landing. Ég var á cessnu 182, með activeSky weather rétt utan við Borgarfjörð í brjáluðu roki, náði samt að lenda með alla lifandi um borð en farþegarnir(2) voru ekkert sérlega ánægðir með mig. Ég mæli hiklaust með þessu, setur allt annan svip á Flight Sim.