Kannski þú ættir bara að taka þátt, í stað þess að nöldra.. Rithringurinn er ekki nema tveggja mánaða gamall og við erum komin með tugi mjög virkra notenda. Ef þú setur sögu þarna inn muntu fá amk 6-8 rýnir, misgóðar að sjálfsögðu, en mestmegnis uppbyggilegar og hjálpsamar. Það er skrýtið hvernig sumir geta aldrei verið ánægðir, og mér þykir mjög merkilegt að þú hafir aldrei haft fyrir því að skrá þig þarna, og hvernig þú virðist hafa gert upp hug þinn löngu áður en þú einusinni kíktir þarna...