Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: America´s next top model

í Raunveruleikaþættir fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Góð grein, sammála sumu og ósammála öðru. Eitt sem mig finnst vanta.. hún Mercedez (eða hvernig sem það er skrifað) finnst mér vera svo góð og krúttleg… góðmennskan skín af henni.. þetta með sorgina..maður sér það einmitt á henni..svona sorgleg en samt á jákvæðan hátt..ef hægt er að segja það :) Og í sambandi við April, þá fannst mér hún lang skemmtilegust í síðasta þætti þegar hún fór að opna sig soldið… fór að brosa :) þá varð hún skemmtilegri og fallegri og viðkunnanlegri fyrir vikið....

Re: Fanfiction.

í Harry Potter fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Plis viljiði commenta á söguna um hvort hún sé þess virði að halda áfram með hana eða ekki?

Re: Unlikely Alliance: kafli 13 - Hugarangur

í Harry Potter fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Ég vil byrja á að óska þér til hamingju með litlu prinsessuna :) vonandi gekk allt vel :) Svo vil ég næst segja: SNILLD! verð bara að vera sammála hinum, besti spuninn hérna inni…ekki með þeim bestu heldur bestur.. :) allavega í mestu uppáhaldi hjá mér. Vel skrifað og einmitt, nærð persónunum vel… Allavega það vel skrifað ég lifi mig virkilega inn í söguna (sumir spunar ná ekki að grípa mig svona vel með) Einn besti kaflinn þinn hingað til held ég :) Býð spennt eftir framhaldinu :)

Re: Blendingjar

í Harry Potter fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Í sambandi við erfðir er oft talað um ríkjandi og víkjandi gen. Td ef tveir einstaklingar eignast barn saman þá mun ríkjandi genin ráða því hvernig augu, hár og fl er á litinn. Sumir eru með víkjandi gen í sér…æjj..erfðafræði er leiðinleg… Svo að það gæti verið að galdramanangenin séu ríkjandi og hafi meira að segja en mugga genin. Eins og einhver benti á eru gen svartra greinilega meira ríkjandi en hvítra (það er ef þau blandast saman)… Svooo..??

Re: Auga Eilífðar-12.kafli: Dýrlegur draumur... rætist

í Harry Potter fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Þetta er þrusugóður spuni.. enn.. pínu lítið í belg og biðu..sumt er það ekki..en svo kemur smá hluti og þá fer þetta í einn graut.. var ekki viss stundum hver sagði hvað.. enn :) samt sem áður góður spuni :) MJÖG góður :)

Re: Harry Potter – Fastur í fortíðinni. 1.kafli

í Harry Potter fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Mjög góður spuni. það var bara eitt sem mér fannst að. þú skrifar í endann “Jú ætli við verðum ekki að drífa okkur sagði herra Wesley. Hann tók bjórflösku undan skikkjunni og setti hana á borðið Tonks og Skröggur þutu upp og komu aftur með koffortið hans og Þrumufleyginn. Allir í eldhúsinu að Dursley fjölskyldunni undanskilni. Harry gerði það sama og skyndilega var eins og krækt væri í naflann á honum og hann snerist í hringi og eftir smá stund sat hann á gólfinu í stofunni í Hroðagerði 12.”...

Re: Harry Potter og augun, 13. kapítuli - Dagbókin

í Harry Potter fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Mjög flottur kafli :) hlakka til að lesa meira :)

Re: Hversu margar U.G.L.ur??

í Harry Potter fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Er það ekki MINNST?

Re: Ginny = Ginevra???

í Harry Potter fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Var það ekki Ginerva en ekki Ginevra? erva en ekki evra?

Re: Steph og Max

í Sápur fyrir 21 árum, 8 mánuðum
JESSS!!! :) mikið var..! en Boyde eða hvernig sem þettae r skrifað.. auðvitað þarf hann að taka þessu illa… hún fór samt soldið rangt að þessu, hefði bara átt að segja þeim frá þessu strax og leyfa þeim að díla við tilfinningarnar heldur en að slíta sambandinu og láta þeim einmitt finnast þau yfirgefin og særð…. vonandi fer þetta vel á endanum, og að hún geti átt börn og svoleiðis :)

Re: Lífið heldur áfram 3 .kafli

í Harry Potter fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Svakalega fín saga hjá þér :)

Re: Seinna Stríðið 1. kafli

í Harry Potter fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Það væri fínt að þú myndir halda áfram..alltaf fínt að fá nýja sögu :) Ættir kannski að prufa villupúkann? (mér var bent á hann, á eftir að prufa sjálf) Gangi þér vel með framhaldið

Re: Harry Potter og Nistið.

í Harry Potter fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Mér var bent á þetta af öðrum, þetta með drauminn.. enn ég las 5 bókina um jólin og hef ekki litið í hana síðan, man ekkert eftir þessum draum. Mér er sagt að hann líkist draumnum í bókinni fyrst en svo breytist það allt. :)Afsaka ég þetta hér með að þetta sé svona keimlíkt..

Re: Harry Potter og Nistið.

í Harry Potter fyrir 21 árum, 8 mánuðum
hehe ég reyndi að búta þetta niður en þá bara kom einhver villa og allt fraus og læti :) Þannig að ég gafst bara upp búin að reyna og reyna, ákvað að senda þetta inn upp á náð og miskun. Reyni bara betur næst :)

Re: Greinar

í Harry Potter fyrir 21 árum, 8 mánuðum
ehh ég skil ekki alveg hvað þú ert að fara… enn ég var að senda inn grein og var að spekúlera hvað það tæki langan tíma að fá hana samþykkta svo hún yrði birt hérna :)

Re: Vangaveltur.

í Harry Potter fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Helvíti gott svar hjá þér :) Kariemil

Re: Lífið heldur áfram

í Harry Potter fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Verð bara að segja að mér fannst þetta svakalega flott hjá þér :) spennt að vita hver þetta var úti í horni og hvað það er sem Harry veit ekki um Ginny :)

Re: ~Eftir Endalokin, 4. kapítuli~

í Harry Potter fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Mér finnst þetta flott hjá ykkur. Bara spekúlera hvort það komi meiri útskýring á hvaða staður þetta var sem að Hermione og litli strákurinn komu frá, meira en kom fram. Soldið forvitin :) Svo er ég líka að hugsa um minn eign spuna, ekki alveg byrjuð er að hugsa um plottið. Og þar er einmitt afi líka, bara ekki Dumbledore :) skondið ha? Kemur í ljós seinna hver er afinn í minum spuna. Vildi bara láta vita fyrirfram að hugmyndin mín er ekki stolin frá ykkur. Bíð spennt eftir framhaldi frá ykku

Re: Veit einhver??

í Harry Potter fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Ég las einhversstaðar að hún ætli að skrifa 8 bókina en þá með þeim hlutum sem ekki komust í hinar, semsagt derectors cut.. eða kannski í þessu tilviki the edetors (hvernig svo sem maður skrifar þetta) cut… líka það sem henni sjálfri fannst svo þegar til kom ekki passa í söguna þegar hún þróaðist og sleppti sjálf að setja í handritið. Þetta allavega las ég einhversstaðar fyrir stuttu síðan…

Re: Emanuelle Dijon og sprotarnir þrír-k4 Lucia Black?

í Harry Potter fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Það sem mér fannst sérstaklega gott við þessa grein var söngur hattsins :) helvíti góður hjá þér…

Re: Tungumál

í Harry Potter fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Ég hef lesið þær allar á ísl. En er að lesa þær núna á ensku. Fannst þær góðar á ísl en algjör snilld á ensku :) einmitt Hagrid kemur svo vel fram í henni og bara, margir brandarar koma líka betur fram og fleira í þeim dúr.

Re: ~* Upprisa Snáksins 2. kafli *~

í Harry Potter fyrir 21 árum, 10 mánuðum
hehe…var að fatta soldið..líklega fleiri sem hafa fattað það en nafnið á þessum spuna er soldið klúrt :) just leting you know

Re: Uglurnar

í Harry Potter fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Ef það væri svo auðvelt að finna þá sem ekki vilja finnast með því að senda þeim uglu þá hefði Voldemort ekki verið í vandræðum með að finna James og Lily potter þegar hann ætlaði að drepa Harry. Meina það þurfti maður að svíkja þau og kjafta til að hann vissi hvar þau feldu sig. Líka væri það auðveldara að athuga hvort að Voldemort væri á lífi ef menn sendu honum uglu og myndu elta hana :) SVO það hlítur eitthvað að vera sem kemur í veg fyrir að uglurnar rati til þeirra sem eru í felum....

Re: Klósettin

í Harry Potter fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Nokkuð til í þessu. Meina hvort sem að það sé “rétt” að þetta sé aldagömul uppfinning galdraheimsins haldið leyndu fyrir Muggunum þá hlýtur nú að hafa verið skipt um vaska þarna. Meina mörg hundruð ár sami vaskurinn og allt það. Pípurnar, lagnirnar. Ekkert riðgað? úr sér gengið, slitið? Nema að hann Slitherin hafi kunnað galdur gegn ryði? hmm..

Re: Tilvitnanir 2

í Harry Potter fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Ok sagði aldrei að þið skilduð ekki íslensku. mér finnst bara svo flott hvernig þessar tilvitnanir eru núna, allar á BÆÐI ensku OG íslensku. En við höfum bara íslensku útgáfuna á fanfic (auðvitað ekkert erfitt að þýða, en samt)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok