Jæja hér er mitt álit á stelpunum í America´s next top model.
Ég skrifa um tvær sem er búið að kjósa úr bara út af því að mig langar líka að segja um þær.
Öll nöfnin hjá mér eru líklega rangt stafsett:

Xiomora: Mér fannst hún skemmtileg og gerði sitt besta en tennurnar og þessi slönguaugu (þegar hún lét augun koma eins og þau væru að fara að poppa út) fitta bara ekki í fyrirsætubransann. Var kosin út í þarseinasta þætti.

Catie: JESÚS HJÁLPI MANNESKJUNNI! Hún hagaði sér eins og smábarn. Ógeðslega var ég fegin þegar hún var kosin úr. Alltaf með stöðugt væl. Mér fannst hún mun flottari þegar hún var með sítt hár. Tyra ætlaði að gera hana hörkulegari með því að klippa hana, mér fannst hún bara verða barnalegri. Var kosin út seinast.

Camille: Controle freak og algjör díva. Sífelldir stælar. Ég hló afar illgirnislega þegar munnurinn á henni bólgnaði út. Vona bara að einhver af hinum stelpunum brjálist og hendi henni út um gluggan eða eitri fyrir henni eða einhvað.

Yoanne: Það besta sem ég sé um þessa manneskju er jákvæðnin. Besta orðið sem ég hef til að lýsa henni er fersk og bjartsýn. Það var settur hanakambur eða einhvað bull á hana og hún grenjaði ekki eins og Catie heldur hugsaði bara: gott mál vona að þetta líti vel út. Fremur huguð allavegana á miðað við að hún þorði að moona fyrir framan dómarana. Það eina sem pirrar mig við hana er þegar hún sleikir hárið niður, persónulega finnst mér það ógeðslegt.

Sara: Mér finnst hún vera afar flott á þennan persnenska hátt. Dómararnir segja að hún sé með syfjuleg augu en mér finnst bara flottara þegar hún er með augun svona hálflukt eins og hún er. Í seinasta þætti var hún sú eina (fyrir utan Yoanne) sem kom dómurunum til að hlæja.

Shandi: Góð stelpa. Er ótrúlega venjuleg þegar hún er ekki með meik en verður allt önnur manneskja með meikið. Eini gallinn er að hún er með fremur stór eyru. Þegar hún kom fyrst í þáttinn hataði ég hana því þá var hún America´s next top nerd. Ég sá þarna í lok seinasta þátt hvað átti að gerast í næsta þátti (eins og flestir). Hvað var Shandi að gera fara á djammið eða? Mér finnst Shandi líkjast Nicole Kidman mjög mikið með fölu húðina og ljósa hárið.

Mercedes: Voða dugleg á miðað við að hún er með lupuz. Spænska útlitið gerir hana mjög fallega. Hún getur gert þennan fremur sorgarsvip þegar er tekið mynd af henni. Ekki vondann sorgarsvip svona mjög fallegann svip sem fær mann til að hugsa að manni langi að þekkja hana betur. Mér finnst rosalega flott þegar hún er með blóm í hárinu.

April: Smá staðreynd um April: April elskar myndavélina. Myndavélin elskar April. Gagnkvæm ást. April myndast vel og leikur vel en mér finnst eins og hún gleymi að vera hún sjálf. Hún hefur afar kröftugann persónuleika og ætti að nora hann í staðinn fyrir að fela hann.

Ekki meira í bili bæbæ.