Veeeit ekki, ég er stelpa þannig að ég náttla pæli alveg slatta í þessu: “Er ég ástfangin? Hvað þýðir það að vera ástfangin?” En ég veit ekki. Ef ég segi nei, þá finnst mér ég vera að ljúga að sjálfri mér. En ef ég segi já, þá gæti ég fríkað sjálfa mig út því þá væri ég að átta mig á því að ég væri það. Úff, löng ritgerð. Þetta er bara svo STÓR spurning.