Í kjölfar umræðna um rómantík, og að sumir fíli enganvegin “rómantískar klisjur”, datt mér í hug að fá fólk til að telja upp eitthvað svona sem því finnst rómantískt, en kemur ekki (oft) fyrir í bíómyndum.
(Og já, mér fannst vanta nýjan kork)

Svo ég nefni eitthvað sjálfur, þá finnst mér mjög rómantískt að koma með glas af kóki handa henni án þess að hún nefni það (ef ég veit/grunar að hana langi í) þegar hún situr og horfir á sjónvarpið eða eitthvað.
Einhver svona lítil atriði sem sýna þó að maður þekki manneskjuna.

Hvað segiði? :P