Ég er svo ringlaður eins og ég. Ég kynntist þessari stelpur. Ótrúlega falleg, skemmtileg, bara allt sem ég hef alltaf viljað. Við höfum verið að dúlla okkur aðeins saman og hún er búin að segja mér hluti sem hún segir varla bestu bestu vinkonum sínum.

Hún einnig sagði við mig að þegur hún væri komin í smá “alvarlegt” samband með strákum að þú svona lætur hún sig hverfa. Hún hefur notabeni aldrei sagt þetta við neinn áður. Engan af fyrrverandi kærustum né neinn. En hún sagði mér þetta.

Þannig vill svo mál með vexti að ég held að hún sé núna að spila þennan leik við mig.

Hittumst síðast á laugardaginn. Sunnudaginn gat ég ekki hitt hana þar sem hún fékk “næringarskort” eða eitthvað en hún bað mig um að hringja í sig um leið og ég gæti bara til að heyra í mér (var í bíó). Svo fékk ég sms (score) í dag og þá sagðist hún ekki geta hitt mig í dag né á morgun en sagðist samt sem áður helst vilja hringjast eitthvað.

Nú þar sem ég fór að gruna að hún vilji ekkert samband eftir allt þá svaraði ég henni bara að ég gæti ekki hitt hana á miðv. né fimmtd. þar sem ég nenni ekki að lenda í eitthveri þvílíkri sorg útaf eitthverju sem átti aldrei að gerast.

Hvað haldiði að gæti verið að? Ég er alveg heltekinn af henni og mjög viss um að ég vilji samband en mér finnst eins og hún sé á sömu nótum en samt ekki. Góður vinur minn er mjög góður vinur bestu vinkonu hennar og (mér finnst kjánalegt að segja þetta) en þessi stelpa á víst ekki að geta talað um annað en mig og blablabla..)

Svo ég bið um hjálp!