Hæhæ

Ég vildi koma smá umræðu í gang hérna :)

Þið sem eruð í sambandi (þið sem eruð á lausu getið líka svarað þessu, þá bara um fyrrverandi maka), hvernig byrjuðuð þið opinberlega saman? Þá meina ég hver átti frumkvæðið að því, hvað fór ykkar á milli nákvæmlega, var það rómantískt, hvernig leið ykkur eftir á og allt það…

Hjá mér var það þannig að ég og kærastinn minn vorum eitthvað að kúra að kvöldi til og hann var eitthvað að tala um að hann nennti ekki í vinnuna daginn eftir. Hann sagði síðan: “Ég er að spá í að hringja í yfirmanninn minn og segja honum að ég komi ekki í vinnuna, ég sé að kúra með kærustunni minni.”
Þetta var í fyrsta skiptið sem við notuðum “k-orðið” og eftir þetta vorum við opinberlega orðin ká pé ;)
Ég finn til, þess vegna er ég