Unga fólkið í dag? Svona hefur ungt fólk hagað sér ALLTAF. Þetta sagði Sókrates sjálfur fyrir um 2500 árum: Unglingar nú á dögum vilja bara lifa í vellystingum. Þeir kunna ekki mannasiði, neita að láta skipa sér fyrir, bera enga virðingu fyrir þeim fullorðnu og nota tímann til að kjafta saman þegar þeir ættu að vera að vinna. Ungt fólk stendur ekki lengur upp þegar eldra fólk kemur inn í herbergið. Þeir andmæla foreldrum sínum, gorta í veislum, úða í sig sætindum þegar þeir sitja við...