Ef það var ekki á hreinu… vinsamlegast ekki gera mér þann grikk að kjósa þessa gráðugu lygara bush-sleikjubrj(ál)æðinga og morðingja til að stjórna landinu mínu í 4 ár í viðbót… Það væri bara illa gert af ykkur, siríuslí… Ekki gleyma lygunum fyrir írakstríðið, þegar staðfasta þjóðin Ísland studdi hernaðaraðgerðir sem hafa kostað amk tvisvar sinnum fleira fólk lífið heldur en alla Íslendinga! Mér finnst að ég ætti ekki að þurfa að birta myndir af dauðum íröskum börnum hérna til að leggja áherslu á reiði mína… en allir ættu að vita að stríð er óhugnaður sem er ekki hægt að ímynda sér, og ekki einu sinni fanga í mynd af dauðu, brenndu barni.

84% þjóðarinnar var á móti þessu en ekkert hefur verið gert. Við vorum ekki beðin afsökunar, við sendum bna mönnum ekki opinber skilaboð um að við andmæltum þessu og við erum enn á lista hinna viljugu, sama þó ríkisstjórnin láti eins og hún sé ekki til.

og fyrir þá sem ætla að skila auðu… ég skil afstöðu ykkar mjög vel en það verða allir sem eru á móti þessari ríkisstjórn að reyna að kjósa hana í burtu… auðir/ógildir munu því miður ekki getað tekið þátt í ríkisstjórnarmyndun eftir kosningar.

Atkvæði með ríkisstjórninni jafngildir stuðningi við Íraksstríðið og þeir sem ætla ekki að væta hendur sínar blóði á kjördag ættu að passa hvar þeir setja x-ið.