Þetta er að mörgu leyti áhugaverð pæling hjá þér. Ég ætla aðeins að tjá mig um þetta, og bið þá sem lesa þetta vinsamlegast að sleppa öllu yfirdrulli. Þetta er mín skoðun, sjónarhorn kristinnar manneskju. Mér finnst erfitt að hugsa til þess að Guð geri svona nokkuð viljandi. Réttara sagt trúi ég því ekki. En heimurinn er eins og hann er, fullur af synd og erfiðleikum. Það eitt finnst mér nóg til þess að sanna að Guð er ekki eina aflið í heiminum, það hlýtur að vera til andstæðan við Guð,...