Í partýi í vetur lenti ég í samræðum við ungan mann og fljótlega fór samtalið að snúast um tónlist. Við vorum sammála um að Nirvana og Metallica væru snilldarhljómsveitir og ræddum aðeins um þær og fleiri, s.s. Radiohead, Smashing Pumpkins og fleira. Eftir að hafa kynnst tónlistarsmekk hvors annars ágætlega ákvað hann að ‘leyfa’ mér að hlusta á danska hljómsveit að nafni Saybia. Ég hafði ekki heyrt nafðið en lagið sem hann setti á fóninn kannaðist ég eitthvað við. Lagið, sem flestir ættu að...