Iss, já, Linkin Park rokka :D ;) Ég held að Hybrid Theory hafi verið fyrsta platan sem ég keypti, ótrúlegt en satt. Ég hlustaði á hana fram og til baka.. hef samt ekkert gefið hinum plötunum eyru. Ég á dáldið erfitt með að skilja af hverju fólki finnst þetta vera ‘slæm’ tónlist og jafnvel þá ekki flokkast undir tónlist. Þetta er annað form listarinnar sem ég get vel fallist á að sé notuð oft og tíðum á röngum forsendum. En það þýðir ekki að maður geti ekki notið hennar.