Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

manutd
manutd Notandi frá fornöld 64 stig

Re: Lakers Detroit. .... GAME 4

í Körfubolti fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Shaq snerti líka bara boltann einu sinni í sókninni seinustu 8 mínútur leiksins og það sýnir bara hvað Lakers og sérstaklega Kobe sem var að skíta á sig þarna eru að gera. Gjörsamlega að gefa Pistons titilinn. Einfalt en gott mál ;)

Re: Að senda yfir MSN...

í Hugi fyrir 21 árum, 11 mánuðum
nei, bara ef þú sendir einhverjum sem er í útlöndum….held ég.

Re: Fréttablaðið

í Hugi fyrir 21 árum, 11 mánuðum

Re: Stjörnustælar

í Körfubolti fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Humm…ég held nú bara að Carter hafi ekki verið valinn. Hann er líka ekki þannig leikmaður sem að býðst undan svona og held líka að hann hafi ekkert á móti því að reyna að stökkva yfir nokkra frakka í viðbót eins og hann gerði seinast, og má sjá hér: http://www.hugi.is/hahradi/bigboxes.php?box_id=51208& f_id=1057

Re: Stjörnuleikurinn

í Körfubolti fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Ég verð að segja hversu fáránlega svekktur ég er eftir þennan leik. Ég get ekki skilið hvernig það er hægt að láta mannin sem fékk lang flest atkvæðin spila aðeins 16 mínútur í leiknum sem var það 3ja minnsta hjá austrinu,ég er að tala um Vince Carter og hvernig þjálfara austursins tókst að klúðra þessum leik fyrir mér og kannski fleirum. Carter spilaði fyrstu 9 mínúturnar, hvíldi allan annan leikhluta og spilaði svo rétt byrjunina á 3ja leikhlutanum. Ég hefði kannski skilið þessa ákvörðun...

Re: 2 stig í einum leikhluta hjá Warriors

í Körfubolti fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Þetta sýnir bara hvað vörnin hjá Toronto er góð

Re: Sacramento - Dallas

í Körfubolti fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Það væri svo dæmigert ef að allir kæmu úr meiðslum hjá Lakers rétt fyrir Toronto leikinn því Lakers hafa verið að spila frekar illa upp á síðkastið og því miður er eini séns Toronto að vinna þá ef að lykilleikmenn Lakers eru meiddir. Vona svo bara að við fáum smá sýningu frá Air Canada í leiknum…svona smá upphitun fyrir Stjörnuleikinn.

Re: "Nýja" 70 mín

í Tilveran fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Málið er líka að í svona þætti verður maður að vera þú sjálfur en Pétur er alltaf að leika einhvern grínista sem er að vísu rosalega fyndinn en verður örugglega ekkert smá þreytandi eftir nokkra þætti svo málið er fyrir hann að vera bara einlægur og hann sjálfur eins og hinir tveir en ekki að vera með þess uppgerð alltaf því ég trúi því ekki að maðurinn sé svona heima hjá sér.

Re: Áhugamálið 2003

í Körfubolti fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Já, það yrði örugglega mjög jöfn keppni í því hver yrði besti íslendingurinn

Re: Könnun

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Sá sem skorar meira er betri framherji…..Ruud van skorar meira og því er hann betri.

Re: Survivor - Úrslit

í Raunveruleikaþættir fyrir 22 árum, 5 mánuðum
“2 milljónir punda í boði næst” Er nú 99% viss um að verðlaunin verði 2 milljónir dollara en ekki pund þar sem þetta er nú Bandarískur þáttur.

Re: Könnunin

í Körfubolti fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Kaus líka Bosh. Búinn að vera frábær hjá Toronto og hefur oft á tíðum bjargað þeim í leikjum.

Re: Landliðsþjálfarastöður...

í Manager leikir fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Samt asnalegt…ef maður velur ensku deildina þegar maður startar nýjum leik að þá geturu bara verið enksa og brasilíska landsliðið. Ef þú vilt t.d vera það Hollenska þarftu að starta hollensku deildinni og ítölsku ef þú vilt vera það landslið. Hvað á maður þá að gera ef maður vill vera eins og t.d Nigeria eða Cameroon? Það eru engar svoleiðis deildir. Er það þá bara ekki hægt?

Re: Dalls stöðvaði sigurgöngu Lakers...

í Körfubolti fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Og ekkert nema gott um það að segja.

Re: Orlanda vann leik

í Körfubolti fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Skrýtið með Phoenix að þeir lentu 29 stigum að ég held undir á móti Boston fyrir 2 dögum og náðu því upp og unnu þá en komast svo 21 stigi yfir á móti Orlando en tapa því niður. Skemmtilegar sviftingar alltaf í leikjunum hjá þeim.

Re: Timberwolves - Clippers

í Körfubolti fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Fylgdist nú bara með mínum mönnum í Toronto leggja Seatle að velli eftir að hafa lent 21 stigi undir og var mjög sáttur með það. Bosh nýlíði er alltaf að verða betri og betri og 22 stig og 16 fráköst segja nú sitt. 4 sigrar í röð hjá Raptors og vona bara að það sé byrjunin.

Re: Getur einhver sagt mér...

í Hugi fyrir 22 árum, 5 mánuðum
ég fór nú bara á DC og þar var stefið

Re: 8.desember

í Tilveran fyrir 22 árum, 5 mánuðum
hahaha…hversu heiladauður er hægt að vera

Re: Philadelphia

í Körfubolti fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Málið er að Iverson skýtur alltaf mikið, sama hvort hann sé ískaldur eða heitur. Hann verður að vera skynsamari í skotunum og hafa vit á því ef hann er kaldur að vera ekki að skjóta svona mikið. Og meira að segja þegar hann skorar 40-50 stig í leik að þá er hann kannski bara rétt yfir 50% skotnýtingu eða jafnvel undir henni þannig að það er enginn furða að maðurinn skori mikið þegar hann er kannski að taka 30-40 skot í hverjum einasta leik. Þeir eru með Gliff Robinson, Derric Coleman, Snow...

Re: Philadelphia

í Körfubolti fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Persónulega hef ég alltaf hatað Philadelphia og sérstaklega eftir að þeir slógu út Toronto í sjöunda leik í playoffs 2001. Hef líka alltaf hatað Iverson. Maðurinn má eiga það að það er ótrúlegt hvað hann skorar miðað við að hann er svipað stór og ég en eins og ég hef alltaf sagt að þá myndi hvaða leikmaður sem er í Nba getað skorað jafn mikið og hann ef þeir tækju jafn mörg skot og Iverson gerir.

Re: Hórur

í Húmor fyrir 22 árum, 5 mánuðum
allt sami höfundurinn…stigin þá örugglega

Re: Voshon Lenard...who??? að brillera

í Körfubolti fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Hann var nú mjög góður á sínum tíma….spilaði þá með Miami þegar þeir voru upp á sitt besta með Mourning og Tim Hardaway eitthvað um 96-98 og var að standa sig mjög vel þá og að mig minnir valinn leikmaður vikunar þá þegar hann skoraði líka 38 stig. Alltaf þekktur sem mikill skotmaður en ekkert meira en það.

Re: David Robert Joseph Beckham

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Þetta er ekki grein, þetta er korkur en átti alveg örugglega að vera grein, var bara ekki samþykkt.

Re: Carmelo Anthony

í Körfubolti fyrir 22 árum, 5 mánuðum
“…enda hefur hann Lebron verið líkt við Jordan…” Hættið nú að bera hann saman við Jordan, mér finst þeir ekkert líkir. Jordan var miklu meiri stigaskorari, tók ekki jafn mikið af fráköstum og gaf ekki jafn mikið af stoðsendingum á nýlíðaárinu og spilaði ekki einu sinni leikstjórnanda en mér finst LeBron vera miklu líkari Magic…báðir stórir og mjög massaðir leikstjórnendur sem skora svona 20 stig að meðaltali og taka mikið af fráköstum og gefa mikið af stoðsendingum.

Re: paste korkurinn

í Tilveran fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Þú hefur verið að skrifa tulgangslausa pósta , og munt sennilega halda því áfram.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok