Ég veit nú ekki hvort allir séu ánægðir með að það sé verið að hjálpa fólki að fara í andaglas en samt ætla ég að gera það, ég veit í raun ekkert um andaglas þ.e. hvað það er og hvað það er sem gerist í raun og/eða hvort það sé er hættulegt eða hvað. En ég hef farið nokkrum sinnum í andaglas og kann allavega að láta það virka. Eins og ég hef gert þetta þá tek ég pappaspjald með slétt yfirborð, tek glas og teikna hringi fyrir alla stafi stafrófsins eftir glasinu, einnig já, nei, byrja, hætta,...