Er ekki bara tilgangur lífsins að deyja sáttur? Þú liggur á dánarbeðinu og ferð að hugsa um allt sem á daga þína hefur drifið og kemst að þeirri óþægilegu staðreynd að margt af því sem þú gerðir varstu hreinlega ekki sáttur við. Það held ég að sé það versta sem maður geti upplifað, þessvegna á maður miða allar ákvarðanir sínar við það hvort þær muni leiða til þess að maður muni deyja sáttari. Tökum dæmi: þú sérð fatlaðann mann sem þarf aðstoð, (t.d að bera innkaupapoka) þú spáir í því að...