Kettlingar mega nú ekki fara frá mömmu sinni fyrr en um 8 vikna.. En ég held það væri ekkert sniðugt að loka köttinn inni fyrstu næturnar, bara leyfa kettinum að skoða nýja umhvefið sitt í friði og svona, hann fer sér varla að voða. Mín var voða róleg þegar ég kom með hana heim fyrst, fyrstu dagarnir fóru nú bara í það að fela sig bakvið ískápinn og svona, svo hægt og rólega fór hún að labba um, held hún hefði orðið ennþá hræddari ef ég hefði lokað hana inni á næturnar.