Þú getur kynnst eins mörgum og þú vilt bara :) Til að byrja með kynnist bekkurinn best og í öðrum bekk þá er bekkjunum stokkað upp og þú lendir með fullt af nýju fólki í bekk og kynnist því líka.. Svo er líka alltaf annar bekkur með þér í leikfimi. Minn bekkur kynntist vel í fyrsta skiptið í fyrirpartýinu fyrir busaballið :)
Reglurnar voru allavega þannig að yngri en 12 ára máttu ekki koma á deildina, ég átti í Mars og þá var það svona.. En það var bara útaf RS vírus, gæti vel verið að það sé búið að breyta þessu ef RS vírusinn hefur minnakð eitthvað.
Ég nota fóður frá Royal Canin og er mjög ánægð með það, ég myndi ekki gefa henni mat úr búð td Whiskas, það er hreinlega ekki jafn gott og úr dýrabúð, ekki næringamikið og kötturinn þarf meira af honum til að fá næringuna.
Ég tók mót af höndum og fótum hjá dóttur minni með svona sílíkoni sem ég hellti svo gifsi í.. Það var alveg geðveikt ! Getur keypt svoleiðis í Litir og Föndur á skólavörðustíg og Smiðjustíg ;)
Ef þú fórst með þetta í gegnum ShopUSA þá mun þetta kosta slaaaatta mikið, en þú ættir að sjá það á kreditkort færslunni þinni ef þú gerðir það. Ef þetta er bara í gegnum póstinn þá gæti þetta farið í gegn eða þú gætir þurft að borga toll af því, getur séð það á toll síðunni hvað þú myndir þurfa að borga í toll miðað við heildarverð.
Hehe já ég skil þig, maður hefur ekki þorað að fara út í meira fyrir strákana því ég veit ekkert hvað strákar vilja í svona málum og þekki enga stráka með göt til að spurja ;)
Kisur eru mikið rólegri yfir áramótum heldur en hundar, mín kippti sér ekkert upp við lætin í fyrra.. En gott að loka bara gluggum og draga fyrir allavega :)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..