Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

madhatter
madhatter Notandi síðan fyrir 18 árum, 9 mánuðum 32 ára kvenmaður
276 stig

að stinga í bakið (9 álit)

í Rómantík fyrir 13 árum, 5 mánuðum
Ég er með eitt vandamál. Það er stelpa með mér í bekk sem er hrifin af þessum gaur, hún hefur ekki sagt mér það en það sést á henni. Allt í lagi með það, en ég er líka hrifin af þessum gaur. Ég vildi ekki vera að koma upp á milli þeirra, en ég ákvað að spurja hann hvort að hann væri hrifinn af henni (við vorum aðeins í glasi btw). Hann sagðist ekki vera hrifinn af henni en hann sagðist vera hrifinn af annarri en vildi ekki segja mér hverri. En þetta kvöld var hann utan í mér og svoleiðis....

ást og rifrildi (7 álit)

í Dulspeki fyrir 13 árum, 5 mánuðum
Mig dreymdi þennan ótrúlega skrýtna draum sem situr rosalega í mér, og eins forvitin og ég er þá væri ég alveg til í að vita hvað hann gæti þýtt. Hann byrjar þannig að ég og vinur minn, sem við segjum að heiti Elli, erum mjög ástfangin og allt leikur í lyndi. Við höldumst í hendur og erum að kúra í þessu bjarta herbergi. Við erum að tala saman en síðan förum við, ekki beint að rífast, en svona kíta og við hættum að haldast í hendur (man mjög greinilega eftir handabandinu, veit ekki af...

Draumamartröð.. (8 álit)

í Dulspeki fyrir 14 árum, 6 mánuðum
Okei, það er sem sagt einn strákur sem ég er hrifin af, sem við skulum kalla A og draumurinn tengist honum. Þetta byrjar alla vegana þannig að ég er að fara í partí með vinkonu minni en við endum niðrí skólanum mínum þar sem partíið er. Allt er frekar skuggalegt og dökkt yfir öllu í skólanum og við förum inn á bað, þar sem allt er hvítt og bjart. Þar kemur A inn og kyssir mig. Mér finnst það allt í lagi en það eru einhvern veginn sjúklega margir inni á þessu baði og allir að horfa á okkur,...

draumpirringur (11 álit)

í Dulspeki fyrir 14 árum, 9 mánuðum
Hafið ykkur ekki stundum liðið ákveðinni tilfinningu og hún er svo sterk að þið vaknið í þannig ástandi ?? alla veganna það henti mig í morgun. Ég man ekki allan drauminn en það sem situr sem fastast í mér er að mamma er búin að finna handa mér eiginmann (ekki spurja afhverju. Við erum heima hjá mér og ég fer að leita af honum. hann er eldri en ég, frekar þykkur og mjög mömmustrákslegur. ég labba inn ganginn og inn í eldhús og finn að ég er ógeðslega pirruð og finn hann síðan inn í eldhúsi...

Ungabarn .. :S (11 álit)

í Dulspeki fyrir 15 árum, 1 mánuði
Þannig er mál með vexti að fyrir svona tveim nóttum síðan, þá dreymdi mig alveg frekar fokkt upp draum. Ég man ekki allt sem gerðist í honum en það er eitt sem situr fast í mér. Hann byrjaði þannig að allt var í góðum fílíng og ég var bara að gera ekki neitt í draumnum mínum sat bara og horfði út í loftið í rúminu mínu, þegar allt í einu var ég orðin ólétt og síðan var ég allt í einu komin með pínulítinn krakka í hendurnar. Hann gæti ekki hafa verið deginum eldri en eins mánaða, samt á stærð...

Svindl ... :S (25 álit)

í The Sims fyrir 16 árum, 1 mánuði
ég var að innstalla sims2 aftur inn í heimilistölvuna okkar eftir að hún kom úr viðgerð … (og þá hafði ALLT btw dottið út -__- ) og ég er húkkt á svindli x$ og ég var svona að pæla hvort eikker myndi eikker önnur en motherlode og moveobjects on ?? :S *felur sig útí horni*

Andardráttur ... (19 álit)

í Dulspeki fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Ég sit hérna inni í tölvuherberginu núna og mér finnst ég alltaf vera að heyra, með jöfnu millibili, andardrátt. (svona djúpan eins og þú sért hjá lækni ;P ) En þetta kemur sko ekki frá mér eða neinum öðrum. Ég er bara að pæla hvort ég sé orðin geðveik eða eitthvað ?? O.O Bætt við 13. nóvember 2007 - 01:15 ég var sko bara að pæla hvort að þetta gæti gerst eða ég sé einfaldlega orðin kolklikkuð :/

Mistök/teen titans (4 álit)

í Myndasögur fyrir 16 árum, 9 mánuðum
okii ég gerði þau mistök að segja óvart að teen titans væru anime/manga *hits-self*. Ok en veit einhver hvort það er hægt að kaupa myndasögurnar með Teen Titans í Nexus?? =] plís engin koma með shittie komment á þetta *puppy-eyes* ^.^

Teen titans (1 álit)

í Anime og manga fyrir 16 árum, 9 mánuðum
ok ég veit að ég er að vera dálítill nölli núna en ég var að pæla… (þetta telst örugglega ekki sem korkur en ekki eyða þessu ég veit nebbilega ekkert /: ) en ok, ég var að pæla hvort einhverjir vita hvar er hægt að kaupa Teen Titans blöðin ?? plís ekki nein shittie svör við þessu. ég prófaði nebbilega að horfa með vinkonum mínum einu sinni og ég er gjörsamglega búin að festast í þessu núna ! ^^ þannig að komment ?? =]

Dýr (2 álit)

í Dulspeki fyrir 16 árum, 11 mánuðum
Ég lenti í þessu bara fyrr í dag ! ég var að labba heim frá systur minni og heim til mín. Og þegar ég er að labba finnst mér alltaf bregða fyrir köttum. fyrst sýndist mér ég sjá svartan bara að labba, þá leit ég við og það var engin, síðan sá ég hvítan með dökkan flekk á hliðini bregða fyrir stuttan veg og ég beið til þess að gá hvort hann væri þarna en var ekki. Síðast sá ég svona brúnbröndóttan sitja hjá hurð en þegar ég leit var hann horfinn !! Mér finnst þetta voðalega skrýtið og vona...

dauður hundur! (19 álit)

í Dulspeki fyrir 17 árum, 1 mánuði
Mig dreymdir fyrir 2 dögum að ég væri á gamla sveitabænum hennar ömmu. Við vorum að vinna með einhverja vél sem ég sá aldrei almennilega en ég leit inní fjárhús og ég sá að hausinn á Gretti, gamla hundinum hennar ömmu. Hurðin sem ég sá hann í var tvískipt, uppi var hleri og niðri var líka hleri. efri hlerinn hvar opinn og Grettir stökk út og til mín. Ég man að það glaðnaði yfir mér og ég kraup niður og klóraði honum á maganum og fyrir aftan eyrun en síðan stendur hann upp og hoppar aftur inn...

Hljóð! (20 álit)

í Dulspeki fyrir 17 árum, 3 mánuðum
Ég veit ekki alveg hvar ég á að setja þetta en ég set þetta bara hér núna! :) En ég var inná baði að fá mér vatn fyrir nokkru. En þá heyrði ég spýtu falla inní forstofu. Ég fraus náttúrulega og leit að lokum inní forstofu og leitaði en það var ENGIN spýta!! Mér finnst þetta alveg voðalega skrýtið. Ég heyri mjög vel inní forstofu (forstofa, gangur (dyr og baðið) sem var opið) og var líka nýkomin úr skólanum þannig að ég vissi að það var aldrei spýta í forstofunni. En ég tek það fram að ég var...

Spurning! (4 álit)

í The Sims fyrir 17 árum, 11 mánuðum
Ég hef séð á mörgum myndum af simmum sem eru óléttir en geta verið í flottum fötum. Ekki þessum fáránlegu (sum eru það. Eins og þessi fjólubláu á móti grænum buxum eða eitthvað) óléttufötum. Ég ætla að vona að einhver getur hjálpað mér! =)

Christ! (3 álit)

í Dulspeki fyrir 17 árum, 11 mánuðum
Mig dreymir alveg óggislea oft svona desja vú.(ég er bara að skrifa eins og er sagt.) Christ! þótt að þetta sé bara um að mig dreymir að einhver segir eitthvað út úr kú, mig dreymir það! Sko eins og þegar ég var að tala við vinkonu mína, og við vorum bara að fíblast en allt í einu kemur önnur vinkona mín og segir eitthvað (man ekki. Held að það hafi verið TÓMATUR!) Það var eins og ég hrökkvi við og segi: ,, Mig hefur dreymt þetta!" Gvuð hvað ég er orðin klikkuð! Bara að spá ef einhverjum...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok