Hafið ykkur ekki stundum liðið ákveðinni tilfinningu og hún er svo sterk að þið vaknið í þannig ástandi ??
alla veganna það henti mig í morgun. Ég man ekki allan drauminn en það sem situr sem fastast í mér er að mamma er búin að finna handa mér eiginmann (ekki spurja afhverju. Við erum heima hjá mér og ég fer að leita af honum. hann er eldri en ég, frekar þykkur og mjög mömmustrákslegur. ég labba inn ganginn og inn í eldhús og finn að ég er ógeðslega pirruð og finn hann síðan inn í eldhúsi að borða íspinnana sem við áttum og það eru ísbréf um allan bekk og hann stendur þarna með ísinn í munninum og veit að hann er gripinn. ég labba að honum og gríp í öll ísbréfin og fer að skammast í honum að hann eigi að henda þeim og eitthvað og ég er svo pirruð út í hann og mig langar svo að berja hann en síðan vakna ég og ég finn hvað ég er pirruð út í það að hann hafi ekki hennt ísbréfunum x'D