Þannig er mál með vexti að fyrir svona tveim nóttum síðan, þá dreymdi mig alveg frekar fokkt upp draum. Ég man ekki allt sem gerðist í honum en það er eitt sem situr fast í mér.
Hann byrjaði þannig að allt var í góðum fílíng og ég var bara að gera ekki neitt í draumnum mínum sat bara og horfði út í loftið í rúminu mínu, þegar allt í einu var ég orðin ólétt og síðan var ég allt í einu komin með pínulítinn krakka í hendurnar. Hann gæti ekki hafa verið deginum eldri en eins mánaða, samt á stærð við tveggja mánaða barn, en það kemur þessu ekki við. En alla veganna, ég man að ég hélt á honum og var í algeru stresskasti að reyna að gefa honum brjóstamjólk. Síðan akkurat þegar ég var að reyna að gefa honum vaknaði ég.

Ég man enn sársaukasvipinn á honum og það situr eiginlega í mér. Ég veit ekkert hvað var í gangi, verð nú bara 17 ára eftir sirka tvo mánuði, og mér finnst ólíklegt að ég eigi að eignast barn núna. :S