Ég er með eitt vandamál. Það er stelpa með mér í bekk sem er hrifin af þessum gaur, hún hefur ekki sagt mér það en það sést á henni. Allt í lagi með það, en ég er líka hrifin af þessum gaur.

Ég vildi ekki vera að koma upp á milli þeirra, en ég ákvað að spurja hann hvort að hann væri hrifinn af henni (við vorum aðeins í glasi btw). Hann sagðist ekki vera hrifinn af henni en hann sagðist vera hrifinn af annarri en vildi ekki segja mér hverri. En þetta kvöld var hann utan í mér og svoleiðis.

var ég að túlka þetta um of eða ekki. Og ef svo er að hann er eitthvað að pæla í mér líka, hvað á ég að gera með þessa stelpu. væri ég ekki að stinga hana í bakið, því ég veit að hún er hrifin af honum þó að hún hafi aldrei sagt mér það?