Mig dreymdi þennan ótrúlega skrýtna draum sem situr rosalega í mér, og eins forvitin og ég er þá væri ég alveg til í að vita hvað hann gæti þýtt.

Hann byrjar þannig að ég og vinur minn, sem við segjum að heiti Elli, erum mjög ástfangin og allt leikur í lyndi. Við höldumst í hendur og erum að kúra í þessu bjarta herbergi. Við erum að tala saman en síðan förum við, ekki beint að rífast, en svona kíta og við hættum að haldast í hendur (man mjög greinilega eftir handabandinu, veit ekki af hverju) og ég fer og labba að húsi, þar sem samkvæmt draumnum við unnum bæði í. Ég var alveg ótrúlega sorgmædd og leið útaf honum en þá ákvað ég að fara á facebook. Þar var E búinn að gera status sem stóð : A(s.s. ég), heldur að ég hafi gert eitthvað sem ég gerði ekki en ég elska hana samt. Þá fór ég að gráta af gleði og var að labba til baka þegar ég labbaði framhjá húsinu sem við unnum og einhver sagði að E hefði verið að leita af mér. Ég varð enn þá glaðari þegar ég kom að húsinu hans og hann var fyrir utan. Tók utan um mig og við fórum inn í lyftuna á húsinu sem hann bjó í. Við ýttum á takka nr. 35 og fórum eina hæð niður (þetta man ég mjög skírt líka). Fórum inn til hans og fórum aftur að kysstast og hafa kósí. og þá vaknaði ég.

En þetta situr mjög í mér og ég vil endilega vita hvað þetta gæti þýtt. Ég man líka mjög greinilega að þegar ég var inni hjá honum og með honum, var allt mjög bjart en þegar ég var úti og var ein var allt dökkt og litlaust og óspennandi.

Öll hjálp til að ráða þetta vel þegnar :)