Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða
Notendur
Re: Would it kill'ya to do a bit of research?
í Deiglan fyrir 23 árum
Það var einn kall dæmdur fyrir nokkrum árum fyrir að hafa tekjur af lauslæti annarra. Man ekki hvenær.
Ólöglegur áróður - lygar
í Heimspeki fyrir 23 árum
Þú ættir að skoða þessi lög landsins okkar sem byggð á samþykktum SÞ (þú ættir líka að fletta upp orðiðinu kynþáttur í öllum sínum myndum á www.althingi.is): 4. gr. Aðildarríki fordæma allan áróður og öll samtök sem byggja á hugmyndum eða kenningum um yfirburði eins kynþáttar eða hóps manna af ákveðnum litarhætti eða þjóðlegum uppruna, eða sem reyna að réttlæta eða hvetja til kynþáttahaturs og misréttis í hvers konar mynd, og skuldbinda sig til að gera skjótar og jákvæðar ráðstafanir til...
lygar kanslarans
í Heimspeki fyrir 23 árum
Þetta með að gyðingar leyfi kynmök við 3 ára stelpur er útúrsnúningur úr línu í Talmúðinni sem Kanslarinn hefur annað hvort fengið af einhverri nýnasistasíðu eða í einni af nokkrum bókum um Talmúðina eftir gyðingahatara þar sem annað hvort er viljandi misþýddar línur úr Talmúðinni, þær rangtúlkaðar eða bara einfaldlega búnar til. Kanslarinn kallar Talmúðina af vanþekkingu sinni Biblíu gyðinga og heldur því fram að hann hafi lesið hana þrátt fyrir að skilja ekki að hún er lögbók gyðinga, ég...
Re: mAlkAv er einræðissinnaður [yeah right]
í Heimspeki fyrir 23 árum
Nokkur einföld atriði: Þú ætlar mér að ég sé einræðissinnaður af því ég samþykkti ekki grein frá þér, af greininni var augljóst að þú vildir ekkert að ég samþykkti hana, þú vildir að ég samþykkti hana ekki og gætir þannig haldið því fram að ég væri einræðissinnaður, ég fór eftir reglum Huga í þessu máli og það er einfalt. Ég hef verið ósammála fjölmörgum án þess að vilja banna skoðanir þeirra, þínar fullyrðingar td um að gyðingar leyfðu mök við þriggja ára stelpur (sem ég síðan afsannaði) og...
Re: Ég er ekki rasisti [HAH]
í Heimspeki fyrir 23 árum
Miðað við að þú telur að Hitler hafi bara verið Þjóðernissinni sýnir vel og vandlega hvað þú flokkar undir slíkt, einnig bendi ég fólki sem hefur ekki lesið skrif þín á Alþingi að gera það svo það geti metið sjálft hvort þú sért rasisti. Og síðan kemur aðdáandi Hitlers hingað og sakar mig um að vera ólýðræðislegan, ég veit ekki hvort ég á að hlæja eða gráta. En ég vill benda á að greinin mín sem við erum upphaflega að svara er í einu og öllu í samræmi við leikreglur í lýðræðisríki og í raun...
Re: Spurning
í Heimspeki fyrir 23 árum
Að sjálfsögðu átti síðasta línan í fyrstu málsgreininni að vera “telji þau óþörf heldur frekar of væg”
Re: Spurning
í Heimspeki fyrir 23 árum
Kanslari, ég er algerlega óhræddur að láta þau orð sem ég skrifaði á Alþingi standa þar og vera dæmd af lesendum og sérstaklega líður mér vel að vita að þau eru þar umkringd þínum kjaftavaðli og rasistaáróðri og því ekki möguleiki að hugsandi vera telji þau óþörf eða of væg. Ég efast stórlega um að nokkur sakni þess að skyldi ekki hafa birt “grein” þina þar sem þú réðst á mig. Það að samþykkja hana hefði það verið algerlega gegn reglum Huga sem ég á að fara eftir þegar ég ákveð hvaða greinar...
Re: Frumraunir hljómsveita
í Rokk fyrir 23 árum
Kannski ég bendi þeim sem lesa þessar síðustu athugasemdir í þessarri umræðu að ég hef bent Vefstjóra á þær og vona að hann sé sammála mér um að svona lagað eigi ekki heima hérna.
Re: Tenglar og tölur
í Heimspeki fyrir 23 árum
Tek fram að ég ætlaði upphaflega eiginlega ekki að samþykkja þennan tengill en leyfði honum að vera þegar ég sá hvað fólk hafði mikinn áhuga á þessu. Ég giska að þetta sé forvitni, ég mæli ekki með Útlendingaherdeildinni nema að maður sé masókisti, sá heimildarmynd um hana þar sem þeir nýju voru barðir í klessu.
Spurning
í Heimspeki fyrir 23 árum
Finnst einhverjum hérna að ég hefði átt að birta grein eftir Kanslarann sem var í grunnatriðum gagnrýni á upplýsingar sem aðrir sendu inn og ég birti á Rokkáhugamálinu. Mér fannst það engann veginn eiga heima hér og einnig var þetta einfaldlega skítkast á mig, ég hefði heldur ekki birt þetta hefði þetta verið um einhvern annan.
Re: mAlkAv
í Heimspeki fyrir 23 árum
Aldrei kallað Þjóðernissinna hálfvita, ég hef kallað rasista hálvita og fleira.
Re: Somebody Someone
í Heimspeki fyrir 23 árum
mAlkAv er í skóla. mAlkAv hefur engann áhuga á því að birta þvætting eftir þig og fór þá alveg eftir reglum Huga í þeim málum “Eyðið innsendu efni ef um dónaskap eða meinyrði er um að ræða”. Einnig fannst mér út í hött að vera skrifa eitthvað um það sem er að gerast á Rokk inn á Heimspeki. mAlkAv laug engu um Rammstein enda staðhæfði ég ekki neitt heldur birti upplýsingar sem aðrir sendu inn, sjá dæmi http://www.hugi.is/rokk/bigboxes.php?box_id=24438&t_id=304
Re: Ofmetnar hljómsveitir.
í Rokk fyrir 23 árum
ég var að lesa það sama og þú og sá ekki alveg hvar der fór niður enda rökstuddi hann sitt ágætlega á móti ykkur án þess að þið gætuð svarað neitt nema í stuttu máli “slayer rules”, þið þurfið að rökstyðja mál ykkar til að taka der niður en ég efast hins vegar að hann breyti skoðunum ykkar.
Re: Machiavelli
í Heimspeki fyrir 23 árum
Ég hef náttúrulega ekki lesið neitt eftir hann nema í Furstanum þannig að þaðan er minn skilningur á honum kominnn.
Re: Somebody Someone
í Heimspeki fyrir 23 árum
Ég ætla bara að hvetja fólk til að hætta að svara kanslaranum, við erum búinn að afgreiða hann vel og vandalega hér og á Alþingi þannig að þeir sem lesa þetta munu 100% sjá í gegnum hann.
Óþroskaði einstaklingur
í Heimspeki fyrir 23 árum
Ég held ég svari ekki miklu meiru af því sem þú hefur að segja en hérna er smá, ef við finnum heimasíður sem haldið er uppi af íslenskum aðilum þá látum við þá svara til saka fyrir það. Eins og ég kom með gott dæmi um fyrr í umræðunni þá myndir þú ekkert vera sáttur við það að vera kallaður latur, illur og heimskur bara út af ætterni þínu enda eru slíkar staðhæfingar út í hött og tengjast ekkert raunveruleikanum.
Kroni
í Heimspeki fyrir 23 árum
Ég þoli ekki þegar fólk setur nafnið manns í subjectið. Internetið, þeir sem láta svona efni á netið ættu að hlýta sömu reglum og þeir sem dreifa því annars staðar. Við erum ekki að tala um að banna skoðanir af því að okkur líkar ekki við þær heldur af því þær eru ærumeiðandi, það er grundvallarmunur sem þú verður að reyna að skilja.
Re: hver veit ? WWIII gæti alveg verið að koma,
í Heimspeki fyrir 23 árum
Eitt það hættulegasta við þessar rannsóknir sem “sanna yfirburði” hvíta mannsins er að fólk hefur þennan innbyggða vilja til að trúa að það sé betra en aðrir, flestir búa í besta landi í heimi.
Re: Rasismi 693
í Stjórnmál fyrir 23 árum
Ég held að við þurfum ekkert að vera að svara þessum ásökunum hans um að við séum rasistar og ég held að allir sem nenna að lesa skrif hans sjái að hann sé rasisti. Meirihlutinn á ekki alltaf að ráða, ef meirihluta lands finnst góð hugmynd að drepa minnihlutann þá er það ekkert í lagi, öfgadæmi? Alla vega mjög viðeigandi miðað við að Kanslarinn er aðdáandi Hitlers.
Re: Franska Útlendingaherdeildin
í Heimspeki fyrir 23 árum
Ég ætla allavega að hafa hann áfram.
Re: hver veit ? WWIII gæti alveg verið að koma,
í Heimspeki fyrir 23 árum
“Svo hafa rasistar gert ýmsar vísindarannsóknir og komist að sinni niðurstöðu um hvort það sé einhver marktækur munur á kynþáttum,” - Ef rasistar framkvæma þetta þá er það augljóslega ekki rannsóknir sem maður trúir. Þú ert líklega að tala um rannsókn sem sýndi að svartir menn hefðu lægri greindarvísitölu en hvítir menn, sú rannsókn hefur verið oft og mörgum sinnum tekinn fyrir og afsönnuð. Menning Íslendinga er áhugaverður hlutur, þegar fólk er að tala um að verja hana og halda því að...
Re: Flokkur framfarasinna er örugglega ekki neinir aðdáendur Hitlers
í Stjórnmál fyrir 23 árum
Ég skal samt halda áfram að angra ykkur á annan (málefnalegan) hátt en þetta var algjör óþarfi hjá mér.
Re: Skjár 1
í Tilveran fyrir 23 árum
Ég gafst upp stöð 2 fyrir svona ári síðan og hef ekkert séð eftir því, RÚV hefur batnað stórlega síðustu ár og síðan hef ég haft Skjá1 í svona hálft ár núna og finnst frábær.
Re: hvernig skal senda frítt sms :)
í Farsímar fyrir 23 árum
Mér finnst bara fyndið að það sé verið að auglýsa þetta á þessum vef sem er í eigu Landsímans
Re: Ofmetnar hljómsveitir.
í Rokk fyrir 23 árum
Kannski er óþarfi að taka tónlist svo alvarlega að þeir þurfi að drepa sig af því þeir hafa ekki heyrt um einhverja hljómsveit (nema kannski Queen). mAlkAv© (þetta er í alvörunni skrásett vörumerki, ekki mitt samt en þeim er sama þó ég noti það ;)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok