Ég var að pæla í innflutningi fyrir ca. tveimur árum og hafði þá samband við tollinn. Mig minnir að þeir hafi sagt að það væri tollur af diskum, ekki öðru tölvudóti. Ég prufaði að slá 100 dollurum inn á shopusa.is. Í gegnum þá fengirðu diskinn heim fyrir 12.000. Hvar liggur mismunurinn? Maður verður að hafa í huga að shopusa lifir af að senda þetta hingað, og leggja þar af leiðandi á þetta. Þó þú þyrftir að borga 15.000 fyrir diskinn, þá sparar þú samt 10 kall. Ekki slæmt. Væri gaman að vita...