Mér fannst þetta mjög fallegt ljóð. og já ég er líka algjörlega sammála ykkur, ég vildi að það væri auðveldara að losa okkur úr viðjum upplýsingamötunar nútímans, við þurfum að hugsa um það sem okkur er sagt í gegn um sjónvarp/útvarp/dagblöð, því þar leynist oft hið mesta kjaftæði, við þurfum að gagnrýna það sem við heyrum og heimta að fá sannleikann óritskoðaðan. Hvað við getum gert til þess, veit ég ekki enn, en ég veit að ef við snúum bökum saman getum við sigrast á kúgun...