Hmmm… Burtséð frá því hvort ég sé hægri- eða vinstrikona finnst mér alltaf virðingarverðara þegar fólk með ákveðnar stjórnmálaskoðanir viðrar sín eigin baráttumál og viðhorf af krafti án þess að drulla einungis yfir “andstæðinginn”. Þessi “grein” inniheldur nær einungis samansafn af ummælum fólks sem Moondance er ekki sammála frá ýmsum tímum og er þeim meira og minna kippt úr samhengi til að líti út fyrir að þau séu frekjuleg, innihaldslaus, heimskuleg, rökbrot og þannig mætti lengi telja....