Lengi var þörf, en nú er nauðsyn. Ég lít á greinar á huga, sama hvert ég fer, á Börnin okkar, Deigluna, Kvikmyndir eða hvað sem er, allstaðar finn ég það sama:

“”Finnst þér ekki fanginn hafa gert rétt að drepa þetta ógeð“.” -toejam

“Bottomlineid er thad ad hann misnotadi 130 born, ekki hvort hann var prestur eda ekki. Hann atti ad minu mati skilid ad verda drepinn, og thad a hrottafenginn hatt” -Badmf

“Ofbeldi hefur leyst fleiri vandamál í heiminum en nokkuð annað!” -Avatar

“Einmitt, af hverju má ekki gelda hann ? Hann er löngu búinn að missa sinn rétt til að halda kynhvötinni.” -idf

Og fleira og fleira! Hvað er að ykkur? Ég neyðist til að láta af vörnum mínum gagnvart þeirri fullyrðingu að kvikmyndir séu að ýta undir ofbeldishneigð. Ykkur finnst greinilega algerlega sjálfsagt að myrða fólk ef það myrðir, að fylgja hinni gömlu reglu “Auga fyrir auga og tönn fyrir tönn”, eins og mannskepnan hefur reyndar alltaf gert og mun alltaf gera, en það er greinilega ekki einu sinni falið undir trúaryfirbragði hjá ykkur. Ég veit ekki hvort ég eigi að hrósa ykkur fyrir það eða bölva.

Og ykkur finnst heldur ekkert að því að “gelda” kynferðisafbrotamenn úr hefndarþorsta. Ef allt mannkynið yrði gelt þá mundi líklega fækka stríðum í heiminum, en hinir saklausu sem stjórna og styðja þau ná náttúrulega að halda kynfærunum lengur, það þarf nýja stríðshöfðingja í heiminn. Svínablóðið rennur þó ekki út, það er í okkur öllum nú þegar.

Ég hef á tilfinningunni að ef ofarnefndum hugurum yrði sýnd “The Green Mile” eða eitthvað, þá mundi álit þeirra breytast skjótt. Það að drepa er gríðarlega furðulegt mál, hjá flestum er það fordæmt, en þó styðja þó morð ef réttar ástæður eru á bakvið, svo sem stríð eða hefnd. Og mannkynið drepur óheyrilegar tölur af dýrum, og síðast og síst, aðra menn.

Fólk er á móti drápum af félagslegum ástæðum, ekki siðferðislegum.

Og þetta vandamál er greinilega ekki bara á huga. Um daginn í sumarvinnunni var ég að ræða við nokkrar gelgjur, þó nokkrar gáfaðar, um morðin á sonum Saddams Husseins og hið minna þekkta morð á 14 ára sonarsyni hans, sem gerðist í sömu árás, og þar að auki morð hverrar einustu manneskju sem var í þessu húsi sem þeir voru í. Ég fordæmdi þetta, lýsti yfir skoðun minni að þetta hræðsluherferð miðað á araba, að gera ekki eins og þeir, og að þetta væri fullkomlega viðbjóðslegt að öllu leiti. Og svörin voru á þessa leið:

“Nei, þeir áttu þetta skilið, ég heyrði um daginn að þeir hafi látið fólk í hakkavélar, með fæturna á undan! Þeir áttu þetta skilið!”

Ég gapti, horfði þunglyndur út í bláinn, og reyndi að neita því sem blasti fyrir mér. Svona fólk er til í raun og veru, og það hér á Íslandi. Ég hafði bara lesið um þetta eða heyrt þess getið frá öðrum.

Algerlega hugsunarlausir sauðar sem eru svo brjóstfæddir á fjölmiðlaáróðri að engin sjálfstæð hugsun má brjótast fram nema hún fái viðurkenningu hjarðarinnar fyrst.

Sannt lýðræði, meirihlutinn ræður.
She's well acquainted with the touch of the velvet hand, like a lizard on a windowpane