Töfrakletturinn Voruð þið búin að heyra um töfraklettinn?
Þrír menn voru á gangi og komu að töfrakletti sem var mjög
einfaldur í notkun. Maður átti að hlaupa að klettabrúninni
og stökkva fram af henni og öskra hvað maður vildi breytast í.
Fyrsti maðurinn hljóp að brúninni, stökk og öskraði, “FUGL!”
Pfúff og hann breytist í glæsilegan fugl og flaug í burt.
Annar maðurinn hljóp að brúninni, stökk og öskraði, “FISKUR!” Pfúff og hann breyttist í glæsilegan fisk, lenti í sjónum og synti í burt.
Þriðji maðurinn hljóp að brúninni, hrasaði fram af klettinum og öskraði, “SHIT!” og hann breyttist í eina stóra skítaklessu

;)