Hundurinn minn var aðeins 3 mán, þegar ég fór með hann til dýralæknis og lét örmerkja hann, hann var sko ekki sáttur og grét allann tímann, hann þurfti líka að fá 2 aðrar sprautur þannig að þetta tók smá tíma. svo mánuði síðar þurfti hann að fara aftur, ég hafði hann í svona hundabúri og fór með hann inn, þegar ég opnaði búrið skokkaði hann út en um leið og hann sá dýralækninn, hljóp hann aftur inn í búrið. Dýralæknirinn tók hann í fangið en hann grét og grét þó að hann sæi enga sprautu eða...