Mörgum mánuðum
og ári seinna
lít ég til baka,
á hrædda, litla mig.

Mörgum mánuðum
og ári seinna
horfi ég á gamla
glerbúrið mitt.

Mörgum mánuðum
og ári seinna
stend ég hér án
þungra hlekkja

Mörgum mánuðum
og ári seinna
sé ég hve ótti minn
hefur þig sært.

Mörgum mánuðum
og ári seinna
það var rangt að vera
hrædd við ást þína.

Mörgum mánuðum
og ári seinna
get ég sagt,
að ég sakna þín.
(og félagskapar þíns.)

Mörgum mánuðum
og ári seinna
vil ég gjarnar
segja fyrirgefðu.
G