Þú vilt mér vel
og verður mér góð.
Ég átti mér ósk
og ég orti ljóð.
Allt er sem aldrei áður.

Þú veittir mér von
sem var mér í hag.
Ég ást þinni uni
hvern einasta dag.
Um alla eilíf mun gera.

Ég læri að lifa
og leika létt.
Þú munt mig þjálfa
og þykja létt.
Þú ert allt sem ég þrái.

Ég glaður vil gefa
það góða í mér,
þú allt það mátt eiga
það ætlað er þér.
Aðeins þig eina mun elska.

Þó dagur sé dimmur
og drungi í sál,
þá fljótt munt þú flytja
þitt fegursta mál.
Gæta mín, hugga og gleðja.
It’s not only the car your driving, It’s also the size of the arm hanging out of the window