Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

kronen
kronen Notandi frá fornöld 64 stig

Ritskoðun í BNA (5 álit)

í Deiglan fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Nú stendur til að dæma ritstjóra bandarísks fréttablaðs fyrir að þýða greinar frá Íran, Írak, Kúbu, Lýbíu og Súdan. Þessi lönd eru öll undir viðskiptabanni og samkvæmt nýjum lögum í BNA telst það þjónusta við þessi lönd að þýða greinar frá þeim og öll svoleiðis þjónusta er bönnuð. Refsiramminn er ansi stór og á hann á hættu í að lenda í 10 ára fangelsi. Hann gerði þetta reyndar viljandi til þess að ögra þessum lögum en hvað finnst ykkur um þetta? Maðurinn heitir Robert Bovenschulte og þið...

Bolludagur (7 álit)

í Tilveran fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Hvað er málið með bolludaginn eiginlega? Er þetta eitthvað úr biblíunni eða? :) Nei án djóks veit einhver eitthvað um sögu bolludagsins? kronen

Víma (11 álit)

í Smásögur fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Loksins gafst ég upp. Ég dróg andann inn, djúpt, eins djúpt og ég gat. Þetta var mjög óþæginleg tilfinning. Lungun fylltust sársauka, alveg nýjum sársauka, sem breyttist í alsælu á svipstundu. Ég fann ómælda ánægju streyma um líkama minn. Áður hafði mér verið kalt en þessar nýju hitabylgjur iljuðu mér á óskýranlegan hátt. Ég fann tímaskynið yfirgefa mig. Ég var stiginn úr vídd tímans. Klukkustund breyttist í mínútu og þessi mínúta leið sem dagur. Hugur minn hafði skipt um ham, ég þekkti hann...

Mónapólí (8 álit)

í Smásögur fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Árni: Oh mar, hvar er Dabbi? Kári: Það veit enginn, hann sagðist ætla að koma um níu leitið. Árni: Já ég meina klukkan er orðin tuttugumínútur yfir. Og hann er alltaf með spilið. Finnst ykkur þetta ekkert pirrandi? Jón: Árni, hann kemur bara þegar að hann kemur vertu ekki með þennann æsing. Árni: Mér finnst nú samt hellvíti lélegt að geta ekki mætt á réttum tíma, einu sinni. Hann mætir alltaf of seint og það er ekki einsog við séum að spila þetta meira en einu sinni í mánuði! Kári: Árni...

Sóknarcamp liða sem fá að vera í vörn fyrst.. (21 álit)

í Half-Life fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Það verður að finnna lausn á þessum vanda með sóknarcamp t.d. terrorista í de_dust þegar það lið sem er að spila T vann sem CT. Þetta er engan veginn nógu góð mæling á stryrkleika liðanna þegar annað liðið þarf að spila spila sókn í báðum lotunum. Það er ekkert gagn af varnarplani ef hitt liðið kemur ekkert í sókn. Ég veit að þetta var gert við okkur í undanúrslitum og ég er ekkert bara að svekkjast útaf því, við hefðum póttþétt gert það sama hefðum við byrjað sem CT. Það gera þetta allir....

Hvaða borð eru spiluð í ICSN ? (13 álit)

í Half-Life fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Það hefur einhvernvegin farið framhjá mér hvaða borð verða spiluð í ICSN og á mótinu, eru þetta sömu möppin? Allavega ef einhver gæti póstað bara complete map lista yrði ég afar þakklátur… …[-=NeF=-]punisHER

Hvað er í gangi með 14/14 !!!! (23 álit)

í Half-Life fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Isnet CS servernir hafa lengi verið vinsælustu CS serverarnir á landinu, allavegana hjá mér. Ég man efitr því í sona c.a. Betu 6,5 þá var inset-C 32/32, ég spilaðu oft leiki þar sem að menn voru kannsi að deyja 3-4 bara í spamminu en að var drullugaman ef maður lifði það af. So lækkaði þetta niður í 20/20 minnir mig og fannst mér það alveg passlegt, 10 vs 10. Þegar allir serverarnir urðu so 16/16 byrjar maður bara að retry-ja alltaf öll kvöld á miljón í sona 1 til alveg 4 min alltaf áður en...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok