Það er nú varla hægt að minnast á Unimog án þess að koma að því hversu einstakt og magnað fjöðrunarkerfið undir þeim er. Drifskaftið, sem er í raun ekkert nema mjög langur pinjónn (pinjónninn er sá hluti af drifinu sem snýr kambinum) sem liggur innan í röri upp að millikassa, þar sem eini hjöruliðurinn á skaftinu er. Þetta rör er þar að auki eina stífan sem heldur hásingunni undir bílnum gagnvart fram og aftur hreyfingum, sem gerir fjöðrunina nánast óþvingaða að því leyti nema hvað það er...