Mín skoðun er sú að Cherokee er einn af þeim bestu fáanlegu jeppum í dag. Bæði er hann léttur, aflmikill, drífur vel og er auðveldur í breytingum. Það sem gerir hann léttari en aðra, sambærilega stóra og aflmikla jeppa, sem eru reyndar ekki margir. Það væri þá helst Vitaran sem er örlítið minni að utanmáli, en hefur ekki tærnar þar sem Cherokee hefur hælana í aksturseiginleikum, innanrými og þægindum. 4 cyl Cherokee er örlítið þyngri en Vitara, sem er einungis létt vegna þess hversu þunnt er...