Þegar ég fór með mömmmu bíl í smurningu í vor var þessi bíll inni í stillingu. Mér leist ekkert allt of vel á það sem ég sá, marglit vírahrúga undir mælaborðinu, frekar slöpp blæja og svona. Það þarf samt ekkert að vera að þetta sé slæmur bíll fyrir því, bara svona smotterí sem ég sá. Síðan varðandi vélina, það gæti alveg verið að það séu 133.000 km síðan hún var tekin upp
Það er ekkert verið að flýta sér neitt sérstaklega að þessu. Fjárfestingin á sínum tíma, s.s. dekk, negling, felgur og það allt var um 300.000 en auðvitað lækkar þetta í verði um leið og maður kaupir þetta og síðan aftur þegar byrjað er að keyra á þessu. En ef einhvern langar í þetta þá má hann alveg bjóða í það.
Þetta eru svo gott sem ný dekk, kannski ekin um 1000 km í mesta lagi, síðan eru þau negld og á felgum. Þú veist síðan hvernig þetta er, 220 þúsund er verðið fyrir ríka fíflið sem veit ekki #$%#$% í sinn haus síðan ef þú ert ekki algjör asni þá auðvitað prúttarðu! (100 þúsund er samt aaaaaðeins of mikil bjartsýni, en þannig er það þá bara!)
Af hverju ertu svona æstur í dísel? Heldurðu að þessi vél verði að skila einhverju meiru en 350 vélin? Annars þá ætla ég bara að reyna að nota bílinn sem mest og halda honum í lagi. Næsta sumar á síðan væntanlega að kíkja eitthvað á vélina og sjá hvort það sé ekki hægt að kreista smá meiri orku út…
Nú þá get ég alveg verið rólegur. En sama hvaða sleggja er í þessu þá er þetta og verður alltaf sama Toyotan sem bara því miður getur ekki orðið gott sama hvað menn rembast!
Jeep notaði ekki NP 203 og þar af leiðandi er hún ekki Quadra-Trac sem er Jeep vörumerki. Millikassarnir sem voru í Wagoneer: Dana 20 (1971-1979 beinskiptir) BW 1339 “Quadra-Trac” full-time (1971-1979 sjálfskiptir) NP 208 “Command-Trac” (std. 1980-1991) NP 229 “Selec-Trac” (opt. 1983-1986) NP 228 “Quadra-Trac” (opt. 1985-1991) NP 242 “Selec-Trac” (opt. 1987-1991) NP 219 “Quadra-Trac” full-time (opt. 1980-1985) 727 skiptingin kom ekki fyrr en 1980 í þessa bíla og þar sem eldri Quadra-Trac...
Ég held að það sé NP 208, ég hef aldrei séð neitt um NP 209. Það ætti að vera kringlótt plata aftan á millikassanum sem á stendur “New Process Gear, Model 208”
Í rauninni áttar maður sig ekki á þessu fyrr en maður rekur sig virkilega á. Ég var nú svo heppinn að það var bara skilti fyrir mér þegar ég fékk kjaftshöggið, ég átti það svo sannarlega skilið. Þarna áttaði ég mig virkilega á því hvað það þarf virkilega lítið til að fara úrskeiðis og ég reyni að passa mig betur hér eftir.
Allt þetta nema sveifin passar við AMC 258! (líka kveikjan) En annars þá veit ég ekki hverju ég myndi svara við þessri spurningu, þær sem koma efst í hugann eru 5,7L Chrysler HEMI, Chevy 350 og 5,9L Cummins,
Nei ég er ekki með aukatank. Bensínleysi hefur ekki verið vandamál hingað til þegar maður er með brúsa utan á. Síðan er á dagskrá að skipta um vél innan fárra ára og þess vegna nenni ég ekki að fara að smíða aukatank til þess eins að þurfa að smíða annan seinna!
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..