Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

konrad
konrad Notandi frá fornöld 47 ára karlmaður
156 stig

Re: the original series

í Sci-Fi fyrir 24 árum
I like it all!! Enginn spurning ég er algjör alæta á Star Trek (I even liked Generations U know where Kirk and Picard meet) Það eina sem ég hef ekki séð er TOS en það er mjög ofarlega á “to do” listanum mínum. Þó að mér finnist ekkert Star Trek slæmt, þá viðurkenni ég að það er mis gott. Og besta Trek sem ég hef séð og er í gríðarlegu uppáhaldi hjá mér er Star Trek: The motion picture. Hún er gargandi snild, mig hreinlega skortir lýsingarorð til að dásama hana. Ég veit ekki alveg hvað veldur...

Re: Einkenni tegundanna

í Sci-Fi fyrir 24 árum
Þegar maður stundar “viðskipti” eins og Ferengi gera það, þá myndi ég halda að næm heyrn sé nokkuð góð “eign”. T.d. að standa utan “heyrnarmáls” en heyra samt. En hvað varðar t.d. eyru Vulcans þá held ég að það hafi verið skýrskotun Roddenberry's til álfa, þ.e.a.s. að Vulcans hafi verið hans útgáfa af álfum. Konráð B. Live long and prospe

Re: Faith of the hart, þvílíkur bastarður!!!

í Sci-Fi fyrir 24 árum, 1 mánuði
Ég hef ekki ennþá fengið ógeð á neinu öðru Star Trek upphafsstefi. Þau hafa öll elst mjög vel, og jaðra við klassík, svona eins og Star Trek Theme (bíómyndalagið)

Re: Er ekki Star Trek orðið útþynnt ?

í Sci-Fi fyrir 24 árum, 1 mánuði
Stríð er ágætis söluvara fyrir sjónvarpsþætti, þar sem í stríðsþáttum er nóg um að vera, aldrei dauð stund. Sem er náttúrulega það sem sjónvarp snýst um, þ.e.a.s. að halda áhorfandanum límdum við skjáinn. Þú græðir lítið á að sýna þátt sem enginn horfir á. Samt sem áður, þá verður fólk þreytt á að sjá endalaust það sama. “Big bad guy comes, we will all die, but wait, I hava a brilliant and unique solution that wil help us to beat the bad guy. BÆNG, DJÚ, KA-BÚMM, bad guy defeated!” Þannig...

Re: Tolkien þungarokk

í Tolkien fyrir 24 árum, 1 mánuði
Talandi um rokk sem passar við LOTR, þá kemur Færeyska hljómsveitin Týr sterklega til greina. Sándar nokkuð vel.

Re: Hobbitinn> enskuritgerð

í Tolkien fyrir 24 árum, 1 mánuði
Glæsilegt, eins langt og það nær. Málfarið er greinilega mjög skylt Tokien, með örfáum hnökrum. Ég náttúrulega veit ekki hver tilgangurinn með ritgerðinni er, en mér finnst vanta meira um framgang og lok sögunar. En náttúrulega ef þess er ekki þörf, þá er það náttúrulega bara óþarfi. Einkun: 8,5 (+1 fyrir fallega umgjörð sem við sjáum ekki) Kveðja, Konráð B.

Re: Eg i Frakklandi

í Djammið fyrir 24 árum, 2 mánuðum
Á góðri íslensku heitir þetta: “BÖSTED” feikna húmor samt, sagan mætti þó vera betri. Blessaður komdu hausnum í lag og axlaðu þína ábyrgð, ef sagan er þá sönn!!!???!!!

Re: aldurstakmörk fyrir suma aðra ekki...

í Djammið fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Ég get ekki annað en veltst um af hlátri. Það er greinilegt að íslendingar eru kolruglaðir. Það er hreint ótrúlegt um hvað er hægt að rífast. Ljótt og fallegt fólk! Þegar maður fer á djammið niðrí bæ, þá hef ég amk. bara eitt mottó. Að skemmta mér. Mér er nokk sama hvort ég fæ að ríða eður ei (ég á amk 77 ár eftir ólifuð, nógur tími) ég vil bara skemmta mér með skemmtilegu fólki, vera drukkinn ef mig langar, dansa og láta eins og hálfviti. Til þess hef ég fundið einn frábæran stað. Það er...

Re: Gandalfur

í Tolkien fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Það er sem mig minni að Gandálfr hafi verið eitt af nöfnum Óðins. Er ég bara orðinn ruglaður eða… Þætti vænt um ef einhver gæti skýrt þetta fyrir mér.

Re: Aragorn........

í Tolkien fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Var hann ekki konungur yfir Gondor og Anor, eins og þau voru á tíma Ísildurs og Gil-galaðs?

Re: Gandalfur

í Tolkien fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Hrammur: Þetta er algjör perla, ég hefði líklega aldrei orðið sá aðdáandi bóka Tolkiens ef ekki væri fyrir frábæra þýðingu. Ég las nefnilega Hringasróttinssögu fyrst á íslensku og hefði aldrei nennt að lesa hana á ensku ef ég hefði ekki kolfallið fyrir sögunni þegar ég las hana fyrst. Það má líka velta því upp hvort ekki sé hallað á þýðendur almennt, með samanburði við þýðinguna á Hringadróttinssögu. Ég get eiginlega ekki ýmindað mér auðveldara verk að þýða, þá með hliðsjón af því hversu...

Re: Gandalfur

í Tolkien fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Titan: Greinilega misskilningur hjá mér, og biðst ég hér með afsökunar á því (c: Mér þykir það raunar leitt að heira að þú kunnir betur við Hringadróttinssögu á ensku, ekki það að ég sé að hallmæla upprunalega textanum, en er hann snild, og varla væri þýðingin góð ef frumtextinn væri lélegur. En þetta er þín skoðun, og hana virði ég. Kveðja, Konráð B.

Re: Gandalfur

í Tolkien fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Zordock: Þegar um er að ræða Fjarstæðuskáldskap (fantasy) sérstaklega þar sem skapaðir hafa verið heilu heimirnir og kyn í þá. Þá er það nú svo að ef viðkomandi bók/bókaflokkur nær heimsfrægð, þá spretta mjög fljótlega upp allskyns skíringarit um einstaka hluti, menn og atburði. Í þessu tilfelli þá skráði Tolkien sjálfur forsögu síns heims, og þaðan eru þessi nöfn komin (Istari, Mæji, o.s.frv.). Þegar menn hafa viðað að sér nægilegri vitneskju þá fara menn að pæla í ýmsu og koma með tilgátur...

Re: Hermukráka x(

í Tolkien fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Takk hvurslags, var með smá höfuðstafastíflu (c:

Re: Gandalfur

í Tolkien fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Mér þykir þú kræfur Titan að útlista íslensku þýðinguna sem lélega. Það er reyndar alveg rétt hjá þér að texta er best að lesa á frummálinu, og oft á tíðum eru þýðingar ekki upp á marga fiska. En í tilfelli íslensku þýðingarinnar á Hringadróttinssögu þá er þessu alls ekki svo farið. Raunar hef ég rakið þá skoðun mína í annari grein(http://www.hugi.is/tolkien/greinar.php?grein_id=30486&reply=324383) að Hringadróttinssaga hafi átt að vera skrifuð á íslensku, aðallega sökum þess hversu mikið af...

Re: Hermukráka x(

í Tolkien fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Flipskate á því fríkar út, sem flesta hreifir varla. Verum ei með sorg og sút, um littla brosins-karla.

Re: Hermukráka x(

í Tolkien fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Kæri/a flipskate, Ég gerði mér ekki grein fyrir því að þú hefðir EINKARÉTT á þesskonar broskörlum sem ég hef nú brúkað í u.þ.b. 6 ár. Ég sé aungva ástæðu til þess að hætta að brúka þessa ákveðnu tegund broskarla, og hafi ég sært/móðgað eða gjört á þinn hlut á einhvern annan hátt, þá biðst ég innilega forláts. En það er nú svo að broskarlategundir eru tiltölulega fáar en brúkendur þeirra margir, svo að það er næsta víst að fleiri en einn nota samskonar broskarl. Ég þóttist hafa fundið hann...

Re: Legókubburinn

í Heimspeki fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Auðvitað, atóm eru úr róteindum og nifteindum, silly me (c: en það voru einmitt þessir “kvarkar” sem ég var að spá í.

Re: Gandalf

í Tolkien fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Glæsilegt framtak, sem mætti vera lengra og ítarlegra (c: en glæsilegt engu að síður. Bumbaldi er ábyggilega Mæji, varla er hann Vali, og það sama má segja um Gullveigu konu hans. Líklegast þykir mér að þau hafi verið “guðir” skóa og árstíða, en þegar meira fór að bera á mönnum, hobbitum og öðrum slíkum þá hafi þau dregið sig hálfpartin í hlé og látið Fornaskóg og nánasta umhverfi heimilis síns duga, og fyrir vikið orðið öflugri á því svæði. Annars þætti mér gaman að vita hvað það var sem...

Re: Legókubburinn

í Heimspeki fyrir 24 árum, 3 mánuðum
En eru ekki atóm samansett úr enn minni einingum, einhversstaðar las ég það. Gætu það verið öreindir?

Re:

í Heimspeki fyrir 24 árum, 3 mánuðum
gthth: Það er meira en líklegt að ég hafi ekki komið mínu sjónarmiði rétt frá mér, allavega þá hefur þú sagt það sem ég vildi sagt hafa, C), D), … N) forsendur Skjaldbökunnar hafa ekkert með rökfærsluna að gera, þær eru í raun bara nánari útfærsla á því sem um ræðir. Það er ljóst að Z) leiðir af A) og B), þá ætti ekki að skipta máli hvort þú segir það berum orðum eður ei. Fyrir svo utan það að ekki er nauðsynlegt, og jafnvel óæskilegt, að bæta þeirri staðhæfingu við rökfærsluna, þar sem...

Re:

í Heimspeki fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Skjaldbökugreyið er röklega heft. Hún (og reyndar Akilles líka) átta sig ekki á því að A) og B) eru Frumsetingar og Z) rökfræðileg niðurstaða þeirra (hvort sem hún er svo sönn eður ei) en C), D) og þær allar eru afleiðslureglur sem ekki er hægt að bæta inn í rökfærsluna sem Frumsetningu, vegna þess að þær hafa enga rökfræðilega tengingu við niðurstöðuna. Aftur á móti er hægt að nota C) sem aðferð til að sanna að Z) leiði af A) og B). Þar sem Akilles karlin er frekar þunnur, þá áttar hann sig...

The Fellowship

í Tolkien fyrir 24 árum, 4 mánuðum
Ég vil byrja á að taka það fram að ég er “die-hard” aðdáandi bókanna, sem eru eitt mesta bókmentaaftrek sem nokkur maður hefur framið. Að því sögðu þá fór ég á forsíninguna sl. miðvikudag, nokkuð passífur, því eins og fleiri þá hafði þessi dagur dottið úr mér í prófstressi og dagsins amstri. Ég sogaðist strax inn í hina gömlu góðu veröld, sem ég hverf inn í hvenær sem ég les bækurnar, ég var kominn aftan á vagnin hjá Gandálfi þar sem hann renndi inni í Hobbatún. Og ég hélst inni í heiminum,...

Re: Er Guð í raun og veru til?

í Heimspeki fyrir 24 árum, 4 mánuðum
Er Guð til? Við þessu fáum við aldrei svar, nema að Guð sjálfur láti svo lítið að stíga hér niður á þetta rykkorn í alheiminum, og sýna og sanna, að hann sé til. En viljum við í raun og veru áþreifanlega sönnun á tilvist Guðs? Ég vil hana ekki. Ég trúi á Guð, þann Guð sem ég lærði um sem barn, þann Guð sem er góður og fyrirgefur, þann Guð sem býður þér styrka hönd að styðjast við og öxl að gráta á. En ég trúi ekki á þann guð sem sagt er frá á ýmsum stöðum í Biblíunni. Frá hinum refsandi...

Re: Karlremban Tolkien

í Tolkien fyrir 24 árum, 4 mánuðum
Ja nú er ég svo aldeilis hlessa, um allt geta menn (og konur sem reyndar eru líka menn, KVENNMENN) tuðað og tuðað. Sjálfsagt hefur Tolkien verið hin argasta karlremba, hann passar a.m.k. vel í hlutverkið. Gamall breskur prófesor við Oxford í upphafi 20. aldar. En það skiptir nákvæmlega akkúrat engu máli. Það sem máli skiptir í þessu efni er meistaraverkið sem hann skóp. Meistaraverk sem hefur getið af sér óteljandi afkvæmi, meistaraverk og bastarða, sem hafa auðgað heiminn með því að gefa...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok