Ég er búinn að eiga tvo epson bleksprautuprentara og kannast aðeins við þetta. Ég hef komist að því að blekið fer fljótar ef maður prentar eina bls á fimm daga fresti heldur en eina bls alla daga! Ástæðan er sú að þegar prentarinn stendur ónotaður í einhvern ákveðinn tíma þá byrjar hann alltaf á því að hreinsa prenthausana fyrir prentun. Það fer slatti af bleki úr hylkinu í þessari hreinsun, meira heldur en í nokkur blöð. Ég prentaði einu sinni 100 bls. ritgerð í þremur eintökum og mér...