Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Hjálp

í Kettir fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Hate to break it to you, en Whiskas er víst ekkert rosalega gott fóður fyrir ketti. Ég gef mínum köttum Royal Canin þurrfóður, og svo whiskas blautfóður með á kvöldin, því þeim finnst það svo geggjaðslega gott. Myndi samt heldur vilja sleppa því, en ég bara hef það ekki í mér ;þ Þær eru báðar fínar í feldinum, önnur er einmitt mjög loðin. Fara ekki mikið úr hárum, og þó er ég ekki að kemba þeim neitt. Fer samt að byrja á því fljótlega. Svo er náttúrulega til spes fóður sem á að minnka...

Re: Reyklaust fólk er óþolandi!

í Tilveran fyrir 21 árum
Þetta á reyndar við um fyrrum vinnustað… en yfirmennirnir voru líka alltaf hlaupandi út í reyk svo þeim stóð á sama. Ekkert nema rugl í gangi þarna, varla að fólk héldist í vinnunni. Enda hoppaði ég hæð mína af kæti yfir að hætta þarna!!!!!

Re: Reyklaust fólk er óþolandi!

í Tilveran fyrir 21 árum
Sko… fólk má alveg reykja fyrir mér, svo framarlega sem það er ekki blásandi reyknum framaní mig. Það eina sem fer eiginlega í taugarnar á mér við reykingar er þegar maður er að vinna með einhverjum sem reykir, og viðkomandi er alltaf vælandi um að fá að skreppa í reykpásu, sem þýðir að maður sjálfur verður að vinna tvöfalda vinnu á meðan viðkomandi er í burtu. Og hvað ef maður segir bara nei? Þá er maður bara fífl og fáviti og ógeðslega leiðinlegur fyrir að hleypa hinum ekki frá til að...

Re: Hljómar á píanó

í Músík almennt fyrir 21 árum
Búin að finna nákvæmlega það sem ég leitaði að!

Re: Hljómar á píanó

í Músík almennt fyrir 21 árum
Takk fyrir það, en ég var að vonast eftir einhverju aðeins prentvænna :/ :) Helst bara sem væri hægt að prenta út á örfáum blöðum, eða jafnvel einu.

Re: windows bergmálar hjá mér..

í Hugi fyrir 21 árum
Asnaleg tillaga, en getur nokkuð verið að það sé kveikt á mæk hjá þér? (microphone fyrir þá sem ekki skilja lélegt íslenskt slangur). Þetta gerðist hjá mér á farölvu og borðtölvu, og í báðum tilfellum reyndist kveikt á mæk.

Re: Hvæsir á mig

í Kettir fyrir 21 árum, 1 mánuði
Getur nokkuð verið að hún sé með sár eða eitthvað á skottinu? Gamli kötturinn minn fór að haga sér mjög undarlega allt í einu, hvæsti bara og skyrpti ef maður kom við afturendann á henni. Þegar mér tókst loks að taka hana til skoðunar var hún með sár á skottinu eftir bit, sem var komin ígerð í. Ég veit ekki til þess að læðan ætti að vera eitthvað fúl yfir því að skottið á henni sé snert ef hún hefði lent í ævintýri með einhverjum högna. Athugaðu vel hvort hún sé með einhverskonar sár eða...

Re: dýrakirkjugarður

í Kettir fyrir 21 árum, 1 mánuði
Mig minnir að ég hafi einhverntíman heyrt talað um dýrakirkjugarð í Fossvoginum. Meira veit ég því miður ekki.

Re: RÚV

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 1 mánuði
Afsakaðu posko ef ég hef ítt á “svara” hjá þér í staðinn fyrir hjá greinarhöfundi. Er ekki mikið í því að svara greinum hér þannig að ég var ekki alveg að spá í hvar ég ítti á “svara”.

Re: RÚV

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 1 mánuði
Sammála. Var ekki verið að tala um að setja skatt á einstaklinga frá 16 uppí eitthvað 60 eða 70? Svokallaður nefskattur, er það ekki? Man ekki hvað talan var, einhversstaðar á bilinu 1000-2000 kr. á mánuði… Segjum sem svo að það sé 5 manna fjölskylda, þar af 4 yfir 16. Það er orðið talsvert meiri upphæð á mánuði en áður, er það ekki? Annars hef ég ekki mikið fylgst með þessari umræðu. Horfi aldrei á RÚV, né hef ég nokkurntíman borgað af þeirri stöð. Finnst þetta bara einum of mikið rusl sem...

Re: Köttur + Banani : /

í Kettir fyrir 21 árum, 1 mánuði
Gamli kötturinn minn elskar sveppi, steikta í smjöri með salti! Kettir geta verið með fáránlegan matarsmekk.

Re: Lóðerí!

í Kettir fyrir 21 árum, 1 mánuði
Hún má alls ekki sleppa út þegar hún er að breima nema þig langi að hún fjölgi sér. Þetta gengur yfir, þó þetta sé erfitt meðan á því stendur :) Ég á tvær læður og önnur þeirra virðist breima þriðju hverju viku! Veit samt ekki hvort það sé alveg eðlilegt…

Re: Pælingar

í Kettir fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Það er til sandur bæði í Dýraríkinu á Grensásvegi og í Nettó í Mjódd sem er svo gott sem lyktarlaus. Ég man ekki hvað hann heitir, held hann sé framleiddur af EverClean (eða eitthvað álíka). Hann er í bleikum pokum, ca 5 lítrar og er hvítur (hálfgerðir kristallar) með bláum kornum í líka. Það er mynd af hvítum ketti framaná. Hann er frekar dýr, rúmlega 1000 kall pokinn, en hann á líka að duga í alveg mánuð og gott betur en það fyrir einn kött. Þessi sandur klumpast ekki, heldur dregur hann í...

Re: Önnur kisan mín er að beima!!!

í Kettir fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Mín var á tímabili mjög ástleitin við úlpuna mína (kinky köttur!) … en hún virðist vera orðin róleg núna. Núna bíð ég bara spennt eftir að systir hennar byrji á þessum fjára!

Re: Freakz me out !

í Kettir fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Gamla kisan mín gerir þetta líka. Hafðu ekki áhyggjur, hún hefur gert þetta í 11 ár og er eldhress :) Það er ekkert að kisunni þinni.

Re: Önnur kisan mín er að beima!!!

í Kettir fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Og að sjálfsögðu átti þetta að vera “breima” í fyrirsögninni, en ekki að “beima” ;þ

Re: Elko!

í Tilveran fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Ekki bara í Elko sem leikirnir geta verið ódýrari en í BT. Allavega þá virðast GameCube leikirnir vera ódýrari í Ormsson heldur en BT(nema það sé einhver stórkostlegur misskilningur hjá mér). Ég hélt að Ormsson ætti að vera svona dýr búlla en BT ódýrari? …. Eða er það kannski bara misskilningur líka?

Re: svartur og sætur

í Kettir fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Ææææææææææææææææææææj hann er algjör snúður!!!!!!!!

Re: Þarf að vita um mjólkurvörur

í Tilveran fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Smjör er strokkaður rjómi, sem er reyndar fitan úr mjólkinni ;þ

Re: Hmm... hvað merkir þetta?

í Hugi fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Farðu í C:\WINDOWS\repair Þar finnuru skrá sem heitir autoexec.nt Hægrismelltu á hana og veldu Copy Farðu í möppuna C:\WINDOWS\SYSTEM32 , hægrismelltu og íttu á Paste. Prufaðu hvort það virkar núna að setja upp leikinn. Ég veit ekki hver fjandinn þetta er, þetta kom líka fyrir hjá mér. Það er eitthvað meiriháttar vesen að laga þetta, svo ég nenni því ekki, heldur bara kópera þessa skrá í hvert skipti sem ég er að setja eitthvað upp. Það reddar þessu alveg tímabundið. Tölvan mun eyða þessari...

Re: hátíðarmatur

í Kettir fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Ég gef gömlu kisunni minni (10 ára) alltaf rækjur á jólunum og öðrum hátíðisdögum. Hún fær nú samt smá rækjusmakk svona af og til, svona til tilbreytingar …. Henni finnst þær svo góðar ;þ Núna á ég líka tvö lítil kríli sem eru rétt um það bil 4ra mánaða, og ég held ég venji þær bara á það líka :D Hef aldrei gefið þeim rækjur né fisk áður, svo ég hlakka til að sjá hvernig þær bregðast við ;)

Re: Kona að syngja og verður barinn.

í Tilveran fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Það var allavega á b2.is … man ekkert hvað það hét, þónokkrar vikur/mánuðir siðan það var þar.

Re: "Hnúðar" undir spenum á kettling

í Kettir fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Neinei þetta er alltílæ sko :) Dýralæknirinn var alveg sammála mér, sagðist halda að þetta væri eitthvað tengt kynþroskanum hjá henni svo þetta ætti að vera allt í lagi. Þetta er líka búið að minnka heilmikið síðustu dagana.

Re: Draugagangur ?

í Dulspeki fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Getur nokkuð verið að einhver hafi bara verið að tala uppúr svefni?

Re: Reiðir kennarar!!

í Tilveran fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Ég hélt að einhverntíman hefði kennurum hreinlega verið bannað að snerta nemendur (jafnvel klappa þeim á bakið) því það mætti færa alla snertingu undir annaðhvort áreiti eða ofbeldi? Allavega voru einhverjir af mínum kennurum röflandi yfir svoleiðis rugli þegar ég var í grunnskóla, að þeir mættu ekkert lengur. :D
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok