Hunsaðu kisa bara ef hann gerir þetta. Ef hann er í fanginu á þér og bítur, þá skaltu bara leggja hann frá þér eða fara og ekki líta á hann í nokkrar mínútur. Ef hann reynir aftur, skammaðu þá með því að segja ákveðið “nei!” Ég hef gert þetta svona við allar mínar kisur og engin þeirra bítur. Ég á tvær núna sem hvorki bíta né klóra, en þegar þær hafa gert sig líklegar til að prufa hef ég einfaldlega hunsað þær í smá stund og það finnst þeim alveg hræðilega leiðinlegt þannig að þær hætta þessu bara.