Hjartanlega sammála þessu. Fólk ber enga virðingu fyrir lögreglunni í dag sem sést best á því, eins og einhvern nefndi hér að ofan, að fólk veitist að þeim við hvert tækifæri, hreytir í þá fúkyrðum og ræðst stundum á þá! Auðvitað myndi þessi þróun taka nokkur ár. Nú veit ég ekki hvernig vopnaþjálfun er hagað í lögregluskólanum, en það tæki einhvern tíma að senda allt lögreglulið landsins á námskeið í meðferð þessara vopna, þ.e.a.s. stuðbyssunnar, sem mér finnst eiginlega eini raunhæfi...