Skammast mín hálfpartinn fyrir að spyrja að þessu en er einhver munur á PS2 leikjum í BNA og svo í Evrópu!?

Ástæðan er að ég var að komast að því að Madden NFL 2006 leikurinn kemur ekki til Íslands fyrr en 22. september, rúmum mánuði eftir útgáfuna í BNA. Einhversstaðar las ég að það séu sér kerfi fyrir DVD myndir í Evrópu og Bandaríkjunum(held ég…) þannig að ég vildi bara vera viss áður en ég læt kaupa hann fyrir mig úti…

Allar svívirðingar og athugasemdir um takmarkaður gáfur mínar sendist á kimlarsen@kimlarsen.dk