Púff, hörkusett hér á ferð maður, þyrftir helst að henda myndum hingað inn fyrir okkur! En svona miðað við verðið á þessu úti, blöndu af verðum á notuðum settum á Ebay og svo nýjum á t.d. music123.com, þá myndi ég halda að þetta sett gæti farið hátt í 300.000 kr., 250-300.000, fer auðvitað mikið eftir aldri, gæðum, útliti o.fl. Ekki samt taka þessu of bókstaflega, best væri e.t.v. að spyrja kauðana í Tónabúðinni sem eru með umboðið fyrir Pearl á Íslandi.