Ég er búinn að spila á Didgeridoo í 2 ár núna og ég er ekkert kominn með leið á því. Ég mæli svosem ekki með því að fólk velji þetta hljóðfæri sem eina hljóðfærið sem það ætlar að læra á en það er engu að síður mjög gaman að kunna á það. Persónulega fæ ég aldrei leið á þessu, en þessi ‘Vá, kannt þú á svona’ effect fjarar fljótt út. Þeas, ef þú grípur í svona í kringum fólk og spilar segja fyrst allir ‘Vá, þetta er blablbla’ en eftir 5 min eru allir farnir að grátbiðja mann um að hætta....