Já, síðla ágústmánaðar skruppu félagarnir Sverrir A og MC Hawk í Grjótnámuna til þess að taka upp rappmúsík. Heppnaðist ekki betur en að ekki náðist að klára að taka upp allt sem stefnt var að taka upp og því mun Sverrir A halda á ný í stúdíó mjög líklega strax í næstu viku. Eins og kunnugt er er MC Hawk enn í Tékklandi að læra að dansa polka, einnig hefur heyrst að stór skóframleiðandi hafi lýst yfir áhuga sínum yfir að fá hann til þess að leika í stígvélaauglýsingum á vegum fyrirtækisins fyrir asíumarkað. En aftur að því sem ég ætlaði raunverulega að skrifa um, þá er von á laginu “Barnagælur” með Sverri A eftir örskamma stund (1 til 2 vikur). Fylgist með.