Ég hef notað hann þónokkuð. Æðisleg græja. Mæli eindregið með henni. Kostar næstum ekkert og er einn fjölhæfasti synthi sem þú færð. Það er auðvitað hægt að finna betri syntha í eitthvað sérhæft, en þessi er algjört æði.
Protools Cool Edit Pro Acid Protools er klárlega það besta en Cool Edit Pro er ágætt. Ég hef reynt að forðast það að nota Acid en sumir virðast alveg geta notað það. Reason er ekki upptökuforrit þannig að þú skalt ekki ná í það (nema náttúrulega að þú viljir aðeins kanna elektróhliðina á þér).
Nákvæmlega maður! Ég er orðinn dauðþreyttur á fordómum gagnvart poppi og öðrum stefnum sem því miður hafa orðið fyrir barðinu á markaðsfræðingum. Poppmúsík getur verið alveg jafn hjartfólgin tónlistarmanninum og rokkmúsík er fyrir rokktónlistarmenn. Auðvitað er þetta skiljanlegt í ljósi þess hve stór hluti af nútíma poppmúsík er búin til af svokölluðum ‘hitmakers’ og stíliseruð fram úr öllu sem gott getur talist. Fólk verður samt að átta sig á því að þetta er ekki algilt meðal þeirra sem...
Það er í lagi að hafa það á netinu og það er meira að segja í lagi ef það hefur verið spilað einstaka sinnum í útvarpi. Bara að það hafi aldrei komið út á geisladisk eða þessháttar.
Ég veit að þið eruð flestir heimskir og allt það en það er samt ömurlegt að kalla þá sem hlusta á hiphop ‘Negrarappfjanda’ og ‘negrasleikjur’. Það er líka ömurlegt að vera með eitthvert skítkast út í hiphop rétt eins og það er ömurlegt að vera með skítkast út í rokkmúsík. Þið gætuð allt eins verið að segja ‘Þú ert ljótur!’ ‘Nei! Þú ert ljótur!’. Tilgangslaus neikvæðni og heimska. Tónlist er yndisleg. Njótið hennar bara og veriði vinir.
Mér fannst reyndar bráðfyndið þegar Danni Deluxe sagði ‘Rokk? Það er nú bara stytting á Beta Rokk’ í Rottweiler myndbandinu. Sérstaklega þar sem hann var að drekka kampavín í bubblubaði.. Classic.
Allt það sem þið eruð að segja fær mig til þess að vilja skrifa hina ýmsu hluti um fordóma og hroka. En ég ætla þess í stað aðeins að segja eitt: Tónlist er yndisleg. Njótið hennar.
Já ég hef séð myndbandið og heyrt lagið. Oft og mörgum sinnum meira að segja. Af hverju ætti ég að vera að tala um það ef ég hefði ekki séð það? Um hvað ertu að tala? Ég er heldur ekkert að dissa mezzías, en ég held að popptíví spili bara ekki svona íslenskt underground hiphop mikið. Ef þetta myndband væri við lag með á móti sól myndu þeir ábyggilega spila það. Og líka ef allarstelpur myndbandið hefði verið við í svörtum fötum lag. Ekki það að við séum underground hiphop, en Mezzías er það....
Tækni smækni. Þó svo að okkar myndbönd hafi ekki verið hrá og þessháttar þá er ekki þar með sagt að þau standist ekki tæknilegar kröfur. Þú hefur nú alveg séð myndbönd sem eru í sömu myndgæðum og okkar myndbönd. Td. nýja mínusmyndbandið. Málið er bara að lögin okkar voru ekki líkleg til vinsælda að mati stöðvarinnar og ég held að það sé það sama með þitt lag. Ég held að það sé bara kjaftæði í Heiðari Austmann að þetta sé of pólitískt til þess að vera sýnt. Þeir hafa sýnt Rage myndböndin og...
'Þora' þeir því ekki? Þeir ‘þorðu’ heldur ekki að sýna Allarstelpurúraðofan og Jólalagið okkar. Þessi myndbönd eru svo pólitísk og shit. Kom on maður. Þeir vilja bara ekki sýna myndbandið af því að það er ekki líklegt til vinsælda og ekki í þeim standard sem að stöðin hefur. Alveg eins og með okkar myndbönd. Veruleikafyrrðin er að fara með þig.
Síðast þegar ég vissi voru þeir vissulega hættir. Hresst band samt. Söngurinn var reyndar ekki sem bestur, en það er algengt í íslenskum hljómsveitum. www.dordingull.com/lunchbox
Del þykir mér æðislegur. Hann er án nokkurs vafa inni á topp 3 listanum mínum yfir skemmtilegustu rapparana. Fyrir utan það hvað hann hefur skemmtilegt flæði og sérstaka rödd þá þykir mér magnað þegar rapparar geta samið texta um nákvæmlega ekki neitt en samt þyki manni svona gaman að hlusta á þá. Reyndar fjalla mörg lögin hans um eitthvað, en önnur ekki neitt. Deltron þykir mér líka magnað band. Ég hef alltaf gaman af svona syntha pælingum í hiphop'i og ekki skemmir Del fyrir með funky rappi sínu.
Ég fór í fyrra og er að fara í ár. Stórskemmtilegt alveg hreint. Það voru að vísu fullt af löggum lamdar þarna í fyrra og kveikt í einhverjum hluta svæðisins, en það er bara hressandi.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..