Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: ADSL Vesen

í Netið fyrir 24 árum, 1 mánuði
Þú ert að nota Windows sem “router”, segir allt sem segja þarf ;o) Ekki það að ég sé eitthvað að blóta Windows stýrikerfinu en það er bara mjög oft þannig að ef þú ert með adsl á Windows þá slítur það tengingunni í tíma og ótíma, misjafnt auðvitað en það er mjög algengt. Ertu búinn að vera með þetta stýrikerfi lengi á vélinni? Ertu búinn að prufa að setja módemið og tenginguna aftur upp og sjá hvernig það fer? Ég veit þú ert ekki með idle disconnect á því þá mundi hún aftengja þig en ekki...

Re: hvað gett ég gert...

í Netið fyrir 24 árum, 1 mánuði
Þetta þýðir einfaldlega eins og þeir sem hafa svarað þér á undan sögðu. Þú getur ekki sent shortcut sem viðhengi í email-inu. Kannski svara ég þessu frekar seint en fuck that ;o)

Re: Hvar get ég.....???

í Netið fyrir 24 árum, 1 mánuði
Það fylgir frítt hjá flestöllum internetþjónustum. Reyndar kosta mysql aðgangarnir alltaf einhverja þúsundkalla á mánuði. Flestallir sem eru að bjóða frýja vefsíðuhýsingu styðja nú php en mysql aðgangur kostar oftast/alltaf eitthvað aukalega.

Re: Hotmail

í Netið fyrir 24 árum, 1 mánuði
Varstu kannski með lykilorðið þitt svo einfalt eins og kennitöluna þína eða eitthvað? Ef svo er þá getur þú nú bara kennt sjálfum þér um þetta. Þá gæti alveg eins verið að einhver sem þú þekkir sé að stríða þér.

Re: DoD og CS Heimsnet serverar !

í Half-Life fyrir 24 árum, 2 mánuðum
Þakka þér kærlega fyrir Gummi;o) Þess má geta að það hafa verið smá breytingar á portunum á serverunum. CS serverinn er á: games.heimsnet.is:27015 (62.145.141.102:27015). DoD serverinn er á: games.heimsnet.is:27016 (62.145.141.102:27016). Við ætlum að reyna að hafa nýjustu uppfærslur og nýjustu borð og status “síðu” og fleira tengt leiknum á http://games.heimsnet.is/ Takk fyrir. Kristinn aka. StrikI.

Re: Allt í klessu

í Netið fyrir 24 árum, 2 mánuðum
Btw. Tommi minn. Þetta er Kiddi “stóri” frændi hérna ;o)

Re: Allt í klessu

í Netið fyrir 24 árum, 2 mánuðum
Málið er það að Simnet og fleiri lentu á þessu tímabili í fullt af árásum frá vitleysingum í útlöndum og jafnvel héðan innanlands. Fólki finnst svo “sniðugt” að DoS-a eitthvað/einhvern.

Re: Varðandi skráningu liða í DoD á Skjálfta.

í Half-Life fyrir 24 árum, 2 mánuðum
Hvað með að koma bara með einn varamann ?

Re: 1 stafs lén

í Netið fyrir 24 árum, 2 mánuðum
Ég er ekki sáttur við þetta. Það er nú eins og þeir munu græða neitt svakalega á þessu. Svona er víst viðskiptaheimurinn… allir reyna að græða á öllu. Þetta er eins og gaurarnir úti í löndum sem kaupa alla miðana á Superbowl eða einhvern vinsælan leik og selja þá dýrara, það er bara soldið meira magn sem þeir eru að selja þannig þeir græða meira en þetta byggist allt upp á því sama og er leiðinlegt fyrir okkur hina.

Re: aðferð til að svindla í aq

í Quake og Doom fyrir 24 árum, 2 mánuðum
Þetta var nú algjör óþarfi en samt helvíti fyndið! Kveðja, StrikI.

Re: DoD og CS Heimsnet serverar !

í Half-Life fyrir 24 árum, 2 mánuðum
Ég vil samt taka það fram að það er smá minnisvandamál á vélinni og lagvandamál á DoD Beta 2. Þetta gerir það að verkum að CS serverarnir lagga ekkert og virka fínt en DoD serverinn á það til að lagga. Þetta er bæði útaf lag galla í DoD Beta 2 og líka útaf því að það þarf meira innra minni í tölvuna sem keyrir serverinn. DoD verður þá minnkaður niður í 16 manna til að byrja með og útlendingar bannaðir á serverana, sjá hvernig það virkar. P.S. Þetta með að banna útlendingana á serverana er...

Re: DoD og CS Heimsnet serverar !

í Half-Life fyrir 24 árum, 2 mánuðum
Mér finnst frábært hvað margir taka vel í þetta en maður er rosalega hissa hvað margir eru vanþakklátir fyrir þetta framtak og fleiri framtök. Fólk er að “bögga” þessi framtök og tala illa um þau án þess að hafa nokkra reynslu af þeim. Ekki eruð þið að borga fyrir þessa servera og eigið bara að vera þakklát meðan þið fáið þá. Þetta er bara sagt til þeirra sem eru með stæla og leiðindi þegar fólk er að gera sitt besta til að koma með góð framtök! En þakka ykkur öllum kærlega fyrir þessar...

Re: DoD og CS Heimsnet serverar !

í Half-Life fyrir 24 árum, 2 mánuðum
Þú getur til dæmis náð í hann hér: http://static.hugi.is/games/hl/mods/dod/dod_v20.exe og ef þú vilt ná Linux fælana þá getur þú náð í þá hér: http://www.dayofdefeatmod.com/files/game/game.shtml Kveðja, StrikI.

Re: DoD og CS Heimsnet serverar !

í Half-Life fyrir 24 árum, 2 mánuðum
Þakka ykkur kærlega fyrir að taka svona vel í þetta! Ég tek það fram að þessir serverar eru enn á “tilraunastigi” og það er verið að þróa þá á fullu. Í dag, 12. febrúar 2002 er bara einn DoD server og hann er 24 manna og er á dod.heimsnet.is:27017. Ég ætla að starta fleiri DoD serverum því persónulega er ég mest fyrir DoD. Kveðja, StrikI, stundum sem Uncle Fatty.

Re: Redhat Linux 7.0

í Linux fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Alveg rétt hjá Armon! Ég er alveg sammála þessu allavega miðað við mína reynslu! Auðvitað er það satt að maður þarft að fikta með en ALLS ekki eingöngu, maður verður að lesa líka og leita hjálpar hjá öðrum eins og Armon sagði! Gangi þér vel með þetta emil. Kveðja. Kristinn.

Re: Redhat Linux 7.0

í Linux fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Emil, er ekki málið að lesa sig betur til um þetta og kunna það sem maður er að gera áður en maður fer að blóta því öllu og gera sig að algjöru fífli? Ekki skrítið að hluturinn virkar ekki ef þú kannt ekki nóg á hann. Þá leitar maður sér vanalega hjálpar áður en maður fer að tala illa um hlutina. Þú verður að sýna tölvum þolinmæði og ef þú kannt ekki hlutina þar þá áttu að fá hjálp eða lesa þig til, ekki bara fikta og halda að þú kunnir hlutina!

Re: Um Fjöltengi Orkuveitunnar

í Netið fyrir 24 árum, 3 mánuðum
FreO: Seinast þegar ég vissi þá var hætt við ljóslínuna hjá Lina.net en þeir eru nú alltaf að skipta um skoðun;) En varðandi Fjöltengið þá mundi ég ekki mæla með þessu því þetta er í fyrsta lagi shared tenging og í öðru lagi er rukkað fyrir allt download, líka innanlands (eins og hefur oft komið fram hér að ofan). Síðan er líka rétt hjá þeim hérna að ofan að víst þetta er shared tenging þá er gott að vera með þeim fyrstu en því fleiri sem fá sér þetta því minni hraði fyrir þig. Ég reyndar er...

Re: Meiri Friends!!

í Gamanþættir fyrir 24 árum, 4 mánuðum
Ég verð bara að segja að þetta sem þið segið á líka við um mig! Ég dýrka Friends. Ég veit ég tala eins og sjúkur einstaklingur en þeir fá mann til að horfa öðrum augum á lífið! Ég veit þetta er bara sjónvarpsþáttur en svona finnst mér þetta vera! Ég er líka algjör Friends fíkill! Ég vildi óska að þessi þættir væru sýndir 24 tíma á sólarhring (eins og The Truman Show). Það yrði snilld! Ég vona allavega að það verði framleiddar fleiri seríur, hvenær sem það verður! Auðvitað er draumurinn að...

Re: A D S L, Fjöltengi o.fl.

í Netið fyrir 24 árum, 4 mánuðum
Þeir mæla þetta með 2-3 milljona krona græju. Þeir nota frekar storan Cisco router og stilla hann þannig að hann ignore-ar islensku ip tölu netin svo folk fai ekki rukkun fyrir að downloada fra islenskri ip tölu. Hver notandi er annað hvort með fasta löglega ip tölu og þa mælir routerinn alla umferð sem fer um þa ip tölu og rukkar einungis fyrir það sem notandinn downloadar fra utlenskum ip tölu netum (ekkert er tekið fyrir upload og er það þess vegna fritt). Þeir sem eru ekki með fasta...

Re: Ísland, forrysturíki framtíðarinnar

í Netið fyrir 24 árum, 4 mánuðum
Smá sem ég þarf að leiðrétta. Ég les of sjaldan yfir greinarnar/greinasvörin áður en ég sendi þær/þau. “Fyrst og fremst þyrfti að stækka ljósleiðarann eða leggja heilan nýjan til að anna allri eftirspurninni. Ljósleiðarinn er nú alveg að springa í dag.” “Þeir gætu byrjað á því að ganga frá ljósleiðaramálunum héðan og út…” Í báðum þessum tilfellum átti ég auðvitað við Sæstrenginn frá landinu. Afsakið vesenið á þessu hjá mér. Kveðja. Kristinn.

Re: Ísland, forrysturíki framtíðarinnar

í Netið fyrir 24 árum, 4 mánuðum
Sæl verið þið Hugafólk. Mér finnst þetta rosalega sniðug hugmynd en þetta yrði held ég of dýrt. Fyrst og fremst þyrfti að stækka ljósleiðarann eða leggja heilan nýjan til að anna allri eftirspurninni. Ljósleiðarinn er nú alveg að springa í dag. Bandvíddargjöld eru mjög dýr og það mundi enginn vilja borga þau gjöld. Ef þetta þyrfti að ganga þá þyrfti Ríkið að borga startpakkann. Þeir gætu byrjað á því að ganga frá ljósleiðaramálunum héðan og út og síðan þyrfti auðvitað að bæta samböndin hér...

Re: Nexus forsýningin

í Tolkien fyrir 24 árum, 4 mánuðum
Myndin var hreinasta snilld! Ég var þvílíkt spenntur (ég tek það fram að ég hef ekki lesið sjálfa söguna). Ég var alveg dáleiddur! Rosalega spennandi, sorgleg og fyndin mynd! Þeir sem fara ekki á hana þegar hún verður sýnd og þeir sem bíða ekki í biðröðum eftir miðum á hana, þeir eru einfaldlega hálfvitar! (Meint í góðri merkingu;)) Ég gef þessari mynd eins og allir aðrir 30 stig af 10 mögulegum!

Re: A D S L, Fjöltengi o.fl.

í Netið fyrir 24 árum, 4 mánuðum
Málið er nú bara það að meðan þú vilt ekki borga 4-5 þús. á mánuði fyrir “góða” internettengingu þá geturu ekki búist við meiru en að þurfa að nota áfram 56k módemið. Bandvídd kostar heilan helling. Ég nenni nú ekki að skrifa meira en þetta hérna en svona er þetta bara.

Re: Könnun

í Quake og Doom fyrir 24 árum, 4 mánuðum
Stráka eða stelpu teens? Þú skrifaðir nefnilega *gaypride* neðst, ég var bara að spá ;o)

Re: Könnun

í Quake og Doom fyrir 24 árum, 4 mánuðum
Afsakið, ég ætlaði ekki að svara svona oft ;o) Smá mistök hjá mér.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok