Sæl verið þið.

Heimsnet var að byrja með sína eigin DoD og CS servera. Þið getið tengst þeim með því að fara inn á games.heimsnet.is port 27015 til 27020. Reyndar í dag eru bara 4 serverar í gangi frá porti 27015 til 27018.

Ég var að búa til DNS færslu fyrir dod.heimsnet.is þannig ef það er auðveldara að muna það þá getið þið notað dod.heimsnet.is og cs.heimsnet.is en dod.heimsnet.is verður ekki almennilega virkt fyrr en á morgun 12. febrúar 2002.

Ég vona að þið takið vel í þetta og góða skemmtun!

Ég þarf nú varla að taka það fram en DoD serverarnir eru að sjálfsögðu Version 2.0 !

Kveðja,
StrikI.