Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: ,,Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur

í Hundar fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Ég samhryggist þér innilega. Ég á eina litla tík (tæplega tveggja ára) sem ég elska alveg út af lífinu. Hún er að fara frá mér á morgun í 2ja vikna frí með múttu í sveitina. Við höfum aldrei verið aðskilin lengur en í 1-2 daga í senn síðan ég fékk hana svo þetta mun vera erfitt. Ég veit hvað ég á, þ.e.a.s ég finn hversu mikið hún elskar mig og hvað ég elska hana. Ég mundi verja hana með lífi mínu án þess að hugsa mig tvisvar um. Mér finnst svakalegt þegar fólk keyrir á dýr og lætur ekki...

Re: Stig

í Deiglan fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Ég er alveg sammála þér. PS. Ég þurfti að halda niður í mér andanum til að lesa þessa grein, engir punktar né kommur. :)

Re: Versta þjónusta sem ég hef fengið er á ...

í Deiglan fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Ég nennti nú ekki að lesa öll svörin hérna svo ég veit ekki hvort það var búið að svara þessu. gall: Ef veitingastaður auglýsir ákveðinn opnunartíma þá á að vera hægt að fara inn á staðinn og fá fulla þjónustu þó svo klukkan sé eina min. í þennan tíma. Ef það er ekki hægt að fá fullu þjónustu þá á staðurinn einfaldlega að auglýsa styttri opnunartíma. Vinur minn og fjölskylda þeirra lentu einmitt í svona “skemmtilegri” þjónustu á Pizza Hut. Bróðir hans átti afmæli svo öll fjölskyldan fór...

Re: David Blaine

í Tilveran fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Já, hann er svakalegur. Sá mynd um hann og já.. þetta er skuggalegur gaur (á góðan hátt). :)

Kveðja, Kristinn.

Re: Veiðleifi á ketti

í Kettir fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Mín skoðun er sú að ef það á að banna lausagöngu hunda í þéttbýlisstöðum, af hverju er þá lausaganga katta leyfð? Ég veit að kettirnir eru snyrtilegri en oftar en ekki eru það þeir sem eru að drepa fugla og jafnvel unga. Mér finnst þetta með að fólk sé að veiða ketti alveg hryllilegt því mér líka rosalega vel við ketti. Ég á sjálfur tík og við tökum alltaf upp eftir hana. Ég viðurkenni það þó að þegar ég fer með hana utan þéttbýlis á fáfarna vegi þá sleppi ég því oft að taka upp eftir hana...

Re: ASSL á Mandrake 9.1?

í Linux fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Það er hægt að setja upp Itex módem á Linux en framleiðendurnir eru samt frekar slappir í að styðja það. Það var grein hér á Huga um þetta í september á seinasta ári. Veit nú ekki hversu mikið hún kemur að gagni þar sem í henni er stuðst við kjarna 2.4.16. Þú ættir allavega að sjá svona.. hvernig á að gera þetta þó svo reklarnir sem eru notaðir í þessari grein eru fyrir kjarna 2.4.16. Hér er greinin: http://www.hugi.is/linux/greinar.php?grein_id=52835

Kveðja, Kristinn.

Re: helvítis IRC fifl

í Tilveran fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Þetta sýnist fávisku þína í þessu. Ef þessi scriptkiddies komast inn þá breytir engu máli hversu margir botarnir eru, þeir collida eða DDoS-a þá bara. Botar eru engin töfralausn og þá alls ekki í þessum málum.

Kveðja, Kristinn.

Re: Apple að fara nota AMD?

í Apple fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Jamm. Ég fæ samt G4 á mánudaginn. Ég get eiginlega ekki beðið neitt þannig ef það verður heavy breyting og nýju makkarnir munu ekki koma til með að kosta mikið þá sel ég bara G4-ann og borga á milli. ;)

Re: Apple að fara nota AMD?

í Apple fyrir 22 árum, 10 mánuðum
… þ.e.a.s. lappa með G5 örgjörvanum. ;)

Re: Apple að fara nota AMD?

í Apple fyrir 22 árum, 10 mánuðum
En veistu nokkuð hvenær þeir gætu farið að koma með lappa, svona ca.?

Re: Apple að fara nota AMD?

í Apple fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Þú gerir þér líka grein fyrir því að ódýrasta powermac G5 vélin kostar 1999 dollara. Hvað ætli sé í henni? Get ekki trúað því að það sé mikið í h enni þar sem þeir auglýsa að þú getir fengið hana *FRÁ* 1999 dollurum.

Re: Apple að fara nota AMD?

í Apple fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Veistu hvenær við gætum átt von á 17" G5 lappa?

Re: Apple að fara nota AMD?

í Apple fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Hehe. Jamm sá það. :) Þessi vél er samt rándýr þar sem “ódýrasta” kostar 1999 dollara og það er örugglega ágætlega hrá vél. Ferðavélar með þessum örgjörvum munu líklegast ekki koma næstum því strax og ef þær fara að koma þá verða þær alveg pottþétt rándýrar. Gæti giskað á ~500 þús kall..

Re: Apple að fara nota AMD?

í Apple fyrir 22 árum, 10 mánuðum
… og eitt enn. Eruð þið alveg viss(ir) að Apple munu koma með nýja örgjörva í haust eða snemma í vetur?

Re: Apple að fara nota AMD?

í Apple fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ætti maður þá að bíða með að kaupa sér vél? Græðir maður eitthvað á því?

Re: MSN fyrir Mac.

í Apple fyrir 22 árum, 10 mánuðum
AMsn er nú bara tcl scripta með graphical interface-i. :) Spurning með Gaim. Tjékkaðu í ports eða apt-get thingy dótinu sem hægt er að nota á MacOSX.

Kveðja, Kristinn.

Re: Apple að fara nota AMD?

í Apple fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ein spurning. Ég var að pæla í að fá mér Powerbook. Ætti maður að bíða eftir 64 bita örgjörvunum? Verða þeir ekki svakalega dýrir þegar þeir koma og verða ekki fá forrit sem supporta þá (vistþýðast á þeim)? Ég er nefnilega að velta því fyrir mér hvort ég ætti að kaupa vélina í þessari viku eða bíða fram á haust/vetur. Ef ég bíð þá mun ég kannski ekki græða neitt mikið þar sem þeir verða kannski ekki komnar út, 64 bita vélarnar? Með þökk og von um svör.

Re: Ert þú Counter-Strike Fíkill

í Half-Life fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Setja bara upp annað stýrikerfi þar sem þú getur alls ekki spilað CS? ;)

Re: Styttist í XD2

í Linux fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ég hlakkaði til að skoða þetta þar sem ég notaði Ximian Desktop 1 mjög mikið. Ég verð nú að segja að ég varð frekar “fúll” að þeir gefi þetta bara út fyrir Redhat og SuSE. Ætli ástæðan sé sú að þetta sé closed source og vilja ekki að fólk fái að vistþýða þetta sjálft (þess má geta að ég hef ekkert kynnt mér það) ?

Kveðja, Kristinn.

Re: vinsælustu linux kerfin og vafrar

í Linux fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Af Linux kerfum þá mundi ég mæla með Gentoo. Allavega af minni reynslu að dæma.

Kveðja, Kristinn.

Re: Mismunun Landsímans

í Netið fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ertu með einhverja “sönnun” fyrir því að þetta séu línurnar hjá Landssímanum? Fólk laggar oft þessa dagana því BBRAS ræður ekki almennilega við allt þetta álag á mestu álagstímunum. Ef þú hefur aftur á móti farið í þetta svokallaða “ADSL test” hjá Landssímanum þá ætti BBRAS nú ekki að hafa nein áhrif á þetta. Getur verið að símalínurnar í þínu húsi og hjá vinum þínum séu orðnar eitthvað gamlar?

Kveðja, Kristinn.

Re: network eth0

í Linux fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ef þetta er config skrá þá er hún varla execute-uð beint er það? *Ef* hún er execute-uð beint þá er þetta svosem í lagi. Btw. rc.conf er ekki heldur til í Slackware. Ég er reyndar ekki með Gentoo kerfi eins og er til að tjékka þetta á, eins og þið vitið. :P Ef þetta væri t.d. rc.net eða eitthvað álíka þá held ég að þetta sé shellscripta, ég er samt ekki viss með rc.conf því ég mundi halda að það væri config skrá..

Kveðja, Kristinn.

Re: network eth0

í Linux fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ómar, nei. Þarft að taka hinar stillingarnar út. :P

Kveðja, Kristinn.

Re: Snobb?

í Hundar fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ég skil ekki þetta snobb í fólki. Svipað og það væri stofnað félag eingöngu fyrir hvítt fólk eða svart fólk eða þá sem eru með X stórt typpi.. Mér finnst þetta sýna hversu lágt fólk getur farið. Hverjum er ekki sama þó hundurinn sé hreinn eða ekki þegar hann er góður? Tíkin mín er yndisleg og hún er ekki hrein. Margir þessara hreinu hunda eru orðnir svo náskyldir að þeir fá mikla kvilla. Er það ekki mjög algengt t.d. hjá *HREINRÆKTUÐUM* labrador að fá einhverja gigt? Persónulega þoli ég ekki...

Re: network eth0

í Linux fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Júmm, hún er í FreeBSD. Hann var að spurja um eth0 og þar af leiðandi Linux. :)

Kveðja, Kristinn.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok